Alþjóða­dagur leiks

Í dag, 11. júní, er alþjóða­dagur leiks haldinn hátíð­legur um allan heim!

Dagurinn var fyrst haldinn árið 2024 og markmið hans er að vekja athygli á mikil­vægi leiks í lífi barna og rétt­indum þeirra til að leika sér. Leik­urinn gegnir lykil­hlut­verki í andlegum og líkam­legum þroska barna og stuðlar að vellíðan þeirra.

Í 31. grein Barna­sátt­mála Sameinuðu þjóð­anna segir m.a.:

  • Aðild­ar­ríki viður­kenna rétt barns til hvíldar og tómstunda, til að stunda leiki og skemmt­anir sem hæfa aldri þess, og til frjálsrar þátt­töku í menn­ing­ar­lífi og listum.

Leikur er einnig frábær leið til að efla tengsl milli barna og foreldra. Nýleg rann­sókn UNICEF Innocenti sýnir að ungmenni á Íslandi telja tengsl við fjöl­skyldu sína þau mikil­væg­ustu í lífi sínu, en á sama tíma kemur fram að rúmlega fjórði hver unglingur talar sjaldnar en einu sinni í viku við foreldra sína. Því er leik­urinn ekki aðeins mikil­vægur fyrir börnin sjálf heldur einnig dýrmætt tæki­færi fyrir foreldra og börn til að styrkja tengslin sín á milli, byggja upp traust og njóta samvista.

Við hvetjum því foreldra til að gera sér glaðan dag og leika með börn­unum sínum – það þarf oft ekki miklu að kosta til. Hér eru nokkrar hugmyndir að skemmti­legum leikjum:

Auk þess má auðvitað ekki gleyma hversu dýrmætt það er að taka þátt í þeim leikjum sem börnin sjálf velja: leika með uppá­halds dótið, fara í felu­leik, heim­sækja leik­völlinn eða njóta samvista á bóka­safninu.

Við vonum að sem flestir gefi sér tíma til að leika með börn­unum sínum í dag – og alla daga ársins!