Barna­heill, Geðhjálp og Unnsteinn Manúel hitta ungmenni á Vopna­firði til að ræða líðan og tengsl

Barna­heill og Geðhjálp, ásamt tónlist­ar­mann­inum Unnsteini Manúel, heim­sækja Vopna­fjörð mánu­daginn 5. október. Heim­sóknin er liður í ferð félag­anna um Aust­firði þar sem rætt er við ungmenni og full­orðna um líðan, samskipti og tengsl.

Á skóla­tíma verður haldin vinnu­stofa með nemendum úr efstu bekkjum grunn­skólans. Þar gefst ungmennum tæki­færi til að ræða sinn veru­leika, reynslu og þau málefni sem standa þeim næst.

Unnið verður úr skila­boðum ungmenn­anna samdægurs og um kvöldið verður opinn íbúa­fundur í grunn­skóla Vopna­fjarðar kl. 19:30. Þar verða helstu niður­stöður vinnu­stof­unnar kynntar og í kjöl­farið efnt til samtals um hvernig samfé­lagið getur byggt áfram á sjón­ar­miðum og skila­boðum unga fólksins.

Íbúa­fund­urinn er öllum opinn, en ekki er æski­legt að börn yngri en 12 ára sæki fundinn. Forsjár­að­ilar, sveit­ar­stjórn­ar­fólk og starfs­fólk skóla- og frístunda­mála, heil­brigðis- og velferð­ar­þjón­ustu og lögreglu eru sérstak­lega hvött til þátt­töku.

Dagskránni lýkur með stuttum tónleikum Unnsteins Manúels.

Heim­sóknin til Vopna­fjarðar er hluti af ferð Barna­heilla og Geðhjálpar um Aust­firði dagana 5.–9. október. Auk Vopna­fjarðar verður komið við á Reyð­ar­firði, Egils­stöðum og Höfn í Horna­firði. Verk­efnið byggir á reynslu af ungmenna­þingum Barna­heilla og Geðlest Geðhjálpar og er mark­miðið að skapa vett­vang fyrir samtal milli kynslóða um málefni sem varða ungmenni í byggðum landsins.