Íþrótta­vika Evrópu: Dagskrá á Vopna­firði

Athugið! Breyttur tími á fyrir­lestri Bjarts Guðmunds­sonar í Mikla­garði! 

Ný tíma­setning:
25. sept­ember kl. 15:00-17:00

Það verður nóg um að vera á Vopna­firði næstu daga þegar Íþrótta­vika Evrópu fer fram dagana 23.–30. sept­ember.

Mark­miðið er einfalt: að hreyfa sig, hafa gaman og helst fá fleiri með!

Það ættu flest að finna eitt­hvað við sitt hæfi í dagskrá vikunnar. Hægt verður að skella sér í fjöl­skyldu­fót­bolta, zumba, sund, göngu­ferð, blak og ræktina – og fyrir þau sem vilja bæta smá ævin­týri við vikuna verður einnig afsláttur af kajak­ferðum.

Íþrótta­vika Evrópu er haldin árlega víða um álfuna undir merkjum #BeActive og snýst fyrst og fremst um að minna okkur á mikil­vægi hreyf­ingar í daglegu lífi.

Öll hreyfing skiptir máli og hún er oft enn skemmti­legri í góðum félags­skap!

Sjá dagskrá Íþrótta­viku Evrópu á Vopna­firði hér að neðan.