Vopnafjarðarhreppur hefur á undanförnum árum sent inn umsókn í styrkvegasjóð hjá Vegagerðinni. Styrkvegir eru samgönguleiðir sem ekki falla undir skilgreiningar vega skv. lögum.
Nú óskar Vopnafjarðarhreppur eftir ábendingum/umsóknum frá aðilum sem hafa áhuga á að fara í lagfæringar á samgönguleiðum sem falla undir skilgreiningar Vegagerðarinnar.
Vegagerðin hefur heimild til að veita Vopnafjarðarhreppi styrk til eftirfarandi samgönguleiða:
- vega yfir fjöll og heiðar sem ekki teljast þjóðvegir;
- vega að bryggjum;
- vega að skíðasvæðum;
- vega að skipbrotsmannaskýlum;
- vega að fjallskilaréttum;
- vega að leitarmannaskálum;
- vega að fjallaskálum;
- vega innan uppgræðslu- og skógræktarsvæða;
- vega að ferðamannastöðum;
- vega að flugvöllum og lendingarstöðum sem ekki eru áætlunarflugvellir, en taldir eru upp í samgönguáætlun.
Í umsókn til sveitarfélagsins þurfa eftirtalin atriði að koma fram:
- Umrædd leið
- Lýsing á fyrirhuguðum framkvæmdum. Meðal annars upplýsingar um staðsetningu og notkun vegar.
- Áætlaður kostnaður við framkvæmdir
Hafa skal í huga að samgönguleið sem nýtur styrks skal vera opin allri almennri umferð samkvæmt heimild úr vegalögum.
Allar ábendingar munu fara fyrir hreppsráð/sveitarstjórn til afgreiðslu.
Umsóknir#umsoknir
Áhugasamdir aðilar eru hvattir til að senda inn umsókn í gegnum netfangið skrifstofa@vfh.is í síðasta lagi mánudaginn 18. mars.