Sveitarstjórn er skipuð 7 fulltrúum, kosnum í sveitarstjórnarkosningum fjórða hvert ár. Sveitarstjórn fundar að jafnaði 3. fimmtudag hvers mánaðar.
Við kosningar 26. maí 2018 voru þrír listar í framboði í Vopnafjarðarhreppi og skiptust atkvæði með eftirfarandi hætti:
- B-listi Framsóknarflokks og óháðra hlaut 156 atkvæði, 36,36%, og 3 fulltrúa.
- Ð-listi Betra Sigtúns, hlaut 150 atkvæði, 34,97%, og 2 fulltrúa.
- S-listi Samfylkingar, hlaut 112 atkvæði, 26,11%, og 2 fulltrúa.
Á kjörskrá voru 497 manns. Atkvæði greiddu 429 eða 86,32%. Meirihluta mynda tvö framboð, B-listi Framsóknarflokks og óháðra og Ð-listi Betra Sigtúns. Fyrsti fundur nýrrar sveitarstjórnar fór fram 14. júní 2018.