Umhverfis- og fram­kvæmdaráð

Fundur nr. 1

Kjörtímabilið 2026—2030

12. ágúst 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 1 haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2026-2030, 12. ágúst 2026 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 11:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Erind­is­bréf umhverfis- og fram­kvæmda­ráðs

    ​Erindisbréf umhverfis- og framkvæmdaráðs lagt fram til kynningar.

  • Kjör formanns

    Lagt er til að Skúli Þórðarsson verði formaður umhverfis- og framkvæmdaráðs.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Kjör vara­for­manns

    ​Lagt er til að Sara Elísabet Svansdóttir verði varaformaður umhverfis- og framkvæmdaráðs.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Siða­reglur sveit­ar­stjórnar

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Orku­sveit­ar­félög, kynning til sveit­ar­fé­laga

    ​Lagt fram til kynningar.

  • SSKS, til kynn­ingar

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Gangna­seðill 2026

    ​Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Formanni ráðsins og fjallskilastjóra er falið að vinna og ganga frá gangnaseðli fyrir árið 2026.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Umsókn um stöðu­leyfi fyrir gám við Hamra­hlíð 10

    ​Fyrir liggur umsókn um stöðuleyfi á gám við íbúðarhúsnæði Hamrahlíð 10.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að heimila skipulags- og byggingafulltrúa að gefa út stöðuleyfi til eins árs.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Umsókn um niðurrif á Hauks­stöðum

    ​Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi til niðurrifs á gamla bænum á Hauksstöðum.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindið og heimilar skipulags- og byggingafulltrúa að gefa út byggingaleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Umsókn um stofnun lóðar á Hauks­stöðum, Þórunn­ar­staðir

    ​Umsókn liggur fyrir um stofnun lóðar á Hauksstöðum, Þórunnarstaðir.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu sveitarstjórnar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:48.