Umhverfis- og fram­kvæmdaráð

Fundur nr. 36

Kjörtímabilið 2022—2026

11. mars 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 36 kjörtímabilið 2022-2026 haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps, miðvikudaginn 11. mars 2026 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Erindi frá Friendly Iceland: beiðni um breyt­ingu á aðal­skipu­lagi

    ​Fyrir liggur ósk frá fyrirtækinu Friendly Iceland um breytingu á skilgreiningu á lóð sinni Norður Skálanes 1. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir breytingu á aðalskipulagi þess efnis að lóðin Norður Skálanes 1 verði skilgreind sem athafnarsvæði í nýju aðalskipulagi í stað núverandi flokkunar sem landbúnaðarjörð. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Aðal­skipulag Vopna­fjarð­ar­hrepps til 2040, til samþykktar

    ​Kynnt uppfærsla á tillögu að aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps til 2040. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hún samþykki að auglýsa aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps til 2040 með áorðnum breytingum um landnotkun á Hrappsstöðum og Norður Skálanesi 1. Jafnframt að endanleg niðurstaða á hafnarsvæði sé tillaga C. og D. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Beiðni um stofnun lóðar fyrir Einars­staði 2

    ​Fyrir liggur beiðni um stofnun lóðarinnar Einarsstaðir 2 í Hofsárdal.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hún samþykki stofnun lóðarinnar. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Beiðni um umsögn vegna Tungu­ár­virkj­unar nr. 130/2025 í Langa­nes­byggð

    ​Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við tillögu að skipulagsáætlun vegna Tunguárvikjununar og vísar málinu til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:38.