Umhverfis- og fram­kvæmdaráð

Fundur nr. 35

Kjörtímabilið 2022—2026

12. febrúar 2026

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps, miðvikudaginn 11. febrúar 2026 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Skóg­rækt, Hrapp­staðir 1 og 2, beiðni um skóg­ræktaráform í aðal­skipulag

    ​Lagt fram minnisblað frá skipulagsráðgjafa. Þar kemur fram að þessi áform þurfa að fara til Skipulagsstofnunar til ákvörðunar um matsskyldu.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð telur ekki tímabært að setja þessi áform inn í aðalskipulagið á þessu stigi. Umsækjanda er leiðbeint að senda tilkynningu til Skipulagsstofnunar og er bygginga- og skipulagsfulltrúa falið að koma bókuninni til skila til umsækjanda.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Aðal­skipulag Vopna­fjarð­ar­hrepps 2026-2040

    ​Kynnt uppfærsla á tillögu að aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps til 2040 í

    framhaldi af vinnufundi sveitarstjórnar og ráðsins.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að vísa tillögunni til sveitarstjórnar til afgreiðslu. 

    Tllagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhjóða.


  • Deili­skipulag Skála­nes­hverfis

    ​Auglýsingu er lokið og bárust tvær umsagnir frá Minjastofnun og Birni Heiðari Sigurbjörnssyni. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir deiliskipulagið að teknu tilliti til viðbragða við athugasemdum og vísar til afgreiðslu í sveitarstjórn.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Húsnæð­isáætlun 2026

    ​Húsnæðisáætlun Vopnafjarðarhrepps 2026 er lögð fram til samþykktar.

    Eftirfarandi tillaga er borin upp til samþykktar: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir Húsnæðisáætlun Vopnafjarðarhrepps 2026 með tilliti til athugasemda um íbúðarfjölda sveitarfélagsins. Formanni ráðsins er falið að fylgja málinu eftir.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Umsagn­ar­beiðni vegna máls nr. 0093/2026 vind­túr­bínur á Sauðanes­hálsi

    ​Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Ráðið telur ekki ástæðu til að veita umsögn að svo stöddu og vísar málinu til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Fram­kvæmda­sjóður aldr­aðra

    ​Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land. Hreppsráð tók erindið fyrir á fundi sínum 4. febrúar sl. og vísaði til ráðsins til umsagnar.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps tekur jákvætt í erindið og leggur til að sótt verði um styrk fyrir fyrirhuguðum endurbótum á leiguíbúðum í Sundabúð.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Skýrsla um fram­tíð­ar­stefnu hafna, til kynn­ingar

    ​Lagt fram til kynningar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:58.