Umhverfis- og fram­kvæmdaráð

Fundur nr. 34

Kjörtímabilið 2022—2026

14. janúar 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00
Valdimar O. Hermannsson ritaði fundargerð

Fundur haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps, miðvikudaginn 14. janúar 2026 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Aðal­skipulag Vopna­fjarð­ar­hrepps til 2040

    ​Aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps til 2040 var sent fundarmönnum og sveitarstjórn til yfirferðar nú í upphafi ársins. Farið var yfir vinnsluferlið af SJ og GÁ, og þeir jafnframt svöruðu spurningum.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir tillöguna fyrir sitt leyti, með viðeigandi lagfæringum á texta samkvæmt umræðu á fundinum, og leggur til við sveitarstjórn að hún óski eftir heimild Skipulagsstofnunar til að auglýsa tillöguna. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Deili­skipu­lags Sunda­búðar – nýtt deili­skipulag í byggðu hverfi

    auglýsing á lýsingu lokið  og umsagnir liggja fyrir inn á gáttinni. https://skipulagsgatt.is

    Umsagnir bárust frá Minjastofnun Íslands, Mílu, Rarik og Slökkviliði Múlaþings. Ráðið fór yfir umsagnir og samþykkir að taka tillit til þeirra athugasemda sem þar koma fram.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að unnin verði vinnslutillaga fyrir deiliskipulagið, að teknu tilliti til umsagna.

    Tillagan er borin upp til samþykktar.   Samþykkt samhljóða.


  • Umsagn­ar­beiðni – Aðal­skipulag Norð­ur­þings, nr. 0538/2023 í Skipu­lags­gátt

    ​Fyrir liggur umsagnarbeiðni um Aðalskipulag Norðurþings, nr. 538/2023 í Skipulagsgátt.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við Aðalskipulag Norðurþings.

    Tillagan er borin upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða.


  • Umsagn­ar­beiðni - Vindorkuver á Brekkna­heiði og Sauðanes­hálsi, nr. 0001/2026 í Skipu­lags­gátt – Kynning matsáætl­unar (Mat á umhverf­isáætl­unum)

    Fyrir liggur umsagnarbeiðni – Vindorkuver á Brekknaheiði og Sauðaneshálsi, nr. 0001/2026 í Skipulagsgátt – Kynning matsáætlunar (mat á umhverfisáhrifum)    Þá sýndi sveitarstjóri afstöðumynd af verkefninu sem nýlega birtist í fjölmiðlum.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum:  Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemdir við kynnta matsáætlun vegna umhverfismats.  

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Minn­is­blað um varma­dælur og húshitun – vísað frá hrepps­ráði til umsagnar

    ​Fyrir liggur minnisblað frá Verkefnastjóra hjá Austurbrú, í framhaldi af mjög vel sóttum kynningarfundi  um málið, sem haldinn var í félagsheimilinu Miklagarði fimmtudaginn 4. desember 2025.   

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð fagnar því að málið hafi verið kynnt með slíkum hætti að hvetur sveitarstjórn að fylgja því eftir og leyta leiða til  þess að aðstoða þá sem hafa áhuga á varmadælum.

    Tillagan borin upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 11:56.