Umhverfis- og fram­kvæmdaráð

Fundur nr. 28

Kjörtímabilið 2022—2026

12. júní 2025

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps, miðvikudaginn 11. júní 2025 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 11:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Umsagn­ar­beiðni frá Múla­þingi vegna Gils­ár­virkjun, máls nr. 0913/2023 í Skipu­lags­gátt

    ​Ráðið hefur farið yfir umsagnarbeiðni Múlaþings vegna Gilsárvirkjunar, mál nr. 0913/2023 í Skipulagsgátt.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við skipulagstillöguna.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Umsagn­ar­beiðni, Stað­ar­ár­virkjun í Bakka­firði mál nr. 0736/2025

    ​Ráðið hefur farið yfir umsagnarbeiðni Langanesbyggðar vegna Staðarárvirkjun í Bakkafirði mál nr. 0736/2025 í Skipulagsgátt.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við skipulagstillöguna.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Umsókn um lóð undir spenni­stöð við Sjóbúð

    ​Tekin var fyrir umsókn frá RARIK ehf, fyrir lóð undir spennistöð við Sjóbúð samkvæmt meðfylgjandi teikningu.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindið og vísar því til sveitarstjórnar til afgreiðslu.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Skipulag skóg­ræktar – leið­bein­ingar um val á landi til skóg­ræktar, til kynn­ingar

    ​Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps þakkar fyrir góðar upplýsingar og vísar leiðbeiningum til skipulagsráðgjafa til hliðsjónar við vinnu aðalskipulags.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Endur­skoðun samgöngu­áætlunar 2006-2030

    ​Lagt fram bréf frá Vegagerðinni um umsóknir vegna hafnargerðar og sjóvarna á samgönguáætlun 2026-2030.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð leggur áherslu á að senda inn staðfestingu til Vegagerðar fyrir 20. júní nk. á framkvæmd hafnar og hafnargarðs við Vopnafjarðarhöfn.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Vakurs­staðir 2 umsókn um fram­kvæmda­leyfi v/skóg­ræktar

    ​Grenndarkynningu umsóknarinnar er lokið og fyrir liggja umsagnir frá Slökkviliði Múlaþings, Fiskistofu, Náttúrufræðistofnun og Minjastofnun Íslands. Einnig eru athugasemdir frá Hauki Geir Garðarssyni, Vakurstöðum 1. Þá liggur fyrir bréf frá Sveini Margeirssyni þar sem kemur fram hvernig brugðist verði við athugasemdum frá Náttúrufræðistofnun og Hauki Geir. Í umsögn Minjastofnunar kemur fram að skráningu minja teljist ekki lokið fyrr en hún hefur hlotið staðfestingu Minjastofnunnar. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps fór yfir umsagnir og athugasemdir sem borist hafa ásamt bréfi Sveins fyrir hönd Brims og telur að með þeim aðgerðum sem þar eru boðaðar, sé komið til móts við þær athugasemdir sem fram hafa komið frá Hauki Geir, Minjastofnun og Fiskistofu. Ráðið telur æskilegt að skilað sé grunnástandsgögnum á fyrirhuguðu ræktarsvæði fyrir 1. október n.k. Þá telur ráðið æskilegt að lækka hlutfall stafafuru, við plöntun verði gætt varúðar á varpsvæði fugla til 15. Júlí og að svæðið sé vaktað árlega. Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir að heimila skipulags- og byggingafulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi þegar að jákvæð umsögn Minjastofnunar er staðfest.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Umsókn um bygg­ing­ar­leyfi í Ytri Hlíð 1

    ​Fyrir liggur umsókn um byggingarleyfi vegna endurbóta á húsi í Ytri Hlíð 1.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindið og heimilar skipulags- og byggingarfulltrúa að gefa út byggingarleyfi þegar fullnægjandi gögn hafa borist.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Umsókn um bygg­ing­ar­leyfi fyrir bílskúr, Hafn­ar­byggð 29

    ​Fyrir liggur að eigandi hefur grenndarkynnt erindið fyrir nágrönnum. Ekki liggur fyrir umsókn um byggingarleyfi.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps tekur jákvætt í kynninguna, en frestar afgreiðslu þar sem ekki liggja fyrir staðfest lóðarmörk. Einnig vantar byggingarleyfisumsókn og umsagnir.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 12:17.