Fundur nr. 27
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Borghildur Sverrisdóttir
FormaðurSigurjón Haukur Hauksson
NefndarmaðurSigurður Grétar Sigurðsson
NefndarmaðurAgnar Karl Árnason
NefndarmaðurLárus Ármannsson
NefndarmaðurKristrún Ósk Pálsdóttir
NefndarmaðurValdimar O. Hermannsson
SveitarstjóriÍris Edda Jónsdóttir
NefndarmaðurFyrir liggur umsagnarbeiðni frá Múlaþingi vegna vinnslutillögu aðalskipulags.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við tillöguna.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur endurnýjun samninga um grenjavinnslu í Vopnafirði.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps felur formanni ráðsins auk nefndarmanns og sveitarstjóra að vinna málið áfram og endurskoða fyrirliggjandi samninga.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Friendly Iceland sækir um tímabundið stöðuleyfi fyrir 4-5, 20 ft. gáma við Norður-Skálanes 1.
Beiðni barst um stækkun á lóð við Skálanesgötu 14.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð Vopnafjarðarhrepps tekur jákvætt í erindið og vísar erindinu til skipulagsráðgjafa til frekari skoðunar.
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjóri fór yfir hafnarmál og kynningu á áætlun um endurnýjun björgunarskips.