Umhverfis- og framkvæmdaráð
Fundur nr. 19
Kjörtímabilið 2022—2026
21. ágúst 2024
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 10:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur haldinn í umhverfis- og framkvæmdaráði Vopnafjarðarhrepps 21. ágúst 2024 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl 10:00.
- Fyrirhugaðar tilraunaboranir fyrir heitt vatn í Selárdal og kalt vatn í Vesturárdal
Sveitarstjóri kynnti fyrirhugaðar framkvæmdir við tilraunaboranir eftir vatni.
Lagt fram til kynningar.
- Fjallskilaskrá Vopnafjarðarhrepps 2024
Fjallskilaskrá Vopnafjarðarhrepps 2024 liggur fyrir fundinum.
Fjallskilastjóri er Eyþór Bragi Bragason.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir fjallskilaskrá ársins 2024 og verður hún birt á vef sveitarfélagsins.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Framkvæmdaleyfi fyrir landbótum á jörðum í Selárdal
Mál nr. 792-2024 í Skipulagsgátt.
Málið var kynnt í skipulagsgáttinni og var frestur til að skila umsögnum til 22 júlí sl. Umsagnir bárust frá Umhverfisstofnun, Náttúrufræðistofnun Íslands, Slökkviliði Múlaþings og
Hafrannsóknarstofnun. Í umsögnum er ekki lagst gegn veitingu leyfisins en lögð áhersla á mikilvægi vöktunar vegna framkvæmdarinnar auk þess sem Náttúrufræðistofnun gerir athugasemdir við að elri sé notaður við þar sem líkur séu á að það sé ágeng tegund.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis og framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að hún heimili útgáfu framkvæmdaleyfisins að teknu tilliti til fyrirliggjandi umsagna og þegar fullnægjandi gögn hafa borist.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Ósk um stækkun á lóð við Hamrahlíð 16
Fyrir liggur beiðni um stækkun lóðarinnar við Hamrahlíð 16 frá lóðarhafa ásamt drögum að merkjalýsingu fyrir lóðina. Stækkunin tekur til svæðis ofan við lóðina upp í brekkuna svipaða lengd og lóðirnar beggja vegna.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð gerir ekki athugasemd við stækkun lóðarinnar og vísar erindinu til sveitarstjórnar.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Breyting á lóð við Búðaröxl 9
Fyrir liggja drög að mæliblaði fyrir lóðina Búðaröxl 9 og lóðirnar beggja vegna við Búðaröxl.
Eftirfarandi tillaga liggur fyirir fundinum: Umhverfis- og framkvæmdaráð samþykkir breytingu á lóðinni og vísar úthlutun til sveitarstjórnar.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:50.