Fundur nr. 4
Kjörtímabilið 2026—2030
Kjörtímabilið 2026—2030
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Gunnar skipulagsráðgjafi frá Yrki arkítektum mætti á fund í gegnum fjarfundarbúnað og fór yfir þau skipulagsmál sem framundan eru og kynnti stöðu verkefna í sveitarfélaginu.
Fyrir liggur bókun frá fundi sveitarstjórnar dagsett 06. ágúst 2026 þar sem samþykktum um stjórn Vopnafjarðarhrepps var vísað til síðari umræðu.
Lagt er til að gerð verði breyting á samþykktri fjárfestingaráætlun sveitarfélagsins vegna breyttra þarfa og forgangsröðunar fjárfestingaverkefna á árinu.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps leggur til að samþykkt fjárfestingaráætlun 2026 verði breytt þannig að fjárheimild vegna framkvæmda við sundlaug lækkur úr 50 mkr. í 32 mkr. Mismunur að fjárhæð 18 mkr. verði færður til annarra fjárfestingarverkefna. Þar af 13 mkr. til malbikunarframkvæmda og 5 mkr. til styrktar kaupa á björgunarbáti. Heildarfjárfesting sveitarfélagsins samkvæmt fjárfestingaráætlun breytist ekki við breytinguna, heldur eingöngu ráðstöfun fjárheimilda milli einstakra fjárfestingarverkefna.
Fyrir liggur umsókn um stofnun lóðar á Hauksstöðum, Þórunnarstaðir.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir erindið og heimilar byggingar- og skipulagsfulltrúa að annast afgreiðslu þess.
Til máls tók SÞ.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Til máls tók ÍEJ og MÞR.
Lagt fram til kynningar. Til máls tóku ÍEJ, SG, SÞ, HKT, EG og SG.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að ráðist verði í tengingu dælu við nýja borholu VF-43 og felur forstöðumanni þjónustumiðstöðvar að annast áframhald verkefnisins.
Til máls tók ÍEJ og SÞ.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Vegna haustþings SSA, sem haldið verður 17. september, samþykkir sveitarstjórn að gera breytingu á fundadagskrá sveitarstjórnar. Fundur sveitarstjórnar sem fyrirhugaður var 17. september 2026 verður færður fram um einn dag og haldinn miðvikudaginn 16. september 2026.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.