Fundur nr. 38
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð
Til máls tóku Valdimar O. Hermannson og Björn Heiðar Sigurbjörnsson.
Fyrir liggur umsókn um veitingarleyfi, fyrir veitingastofu og greiðasölu að Kolbeinsgötu 35, dagsett 9. janúar 2025.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við umsóknina og veitir jákvæða umsögn.
Til máls tók Valdimar O. Hermannson.
Styrkbeiðni hefur verið móttekin frá lego hópi Vopnafjarðarskóla, Dodici, eftir að liðið sigraði First lego league á Íslandi.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn tekur jákvætt í erindið og felur sveitarstjóra að ræða við skólastjóra og fararstjóra ferðar varðandi útfærsluna og leggja fyrir hreppsráð.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra að bregðast við erindinu í samráði við SSA og önnur sveitarfélög.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra að vinna málið áfram í samráði við skipulags- og byggingafulltrúa.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps heimilar að unnin verði skipulagslýsing í samræmi við bókun umhverfis - og framkvæmdaráðs Vopnafjarðarhrepps.
Lagt fram til kynningar. Til máls tóku Valdimar O. Hermannson og Axel Sveinbjörnsson.
Lagt fram til kynningar.
Sveitarstjóri fór yfir framtíðarsýn sína fyrir sveitarfélagið.
Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir tók til máls.
Umhverfis- og framkvæmdaráð – Nr. 23 090125