Sveitarstjórn
Fundur nr. 36
Kjörtímabilið 2022—2026
28. nóvember 2024
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 28. nóvember 2024 í félagsheimilinu Miklagarði kl 14:00.
Í upphafi fundar var óskað eftir að taka inn með afbrigðum, fundargerð menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps nr. 24.
Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Fyrri umræða um fjárhagsáætlun 2025-2028
Ingimar Guðmundsson frá KPMG mælti fyrir fjárhagsáætlun ásamt sveitarstjóra.
Lögð fram til fyrri umræðu tillaga að fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2025 ásamt þriggja ára fjárhagsáætlun fyrir árin 2025 til 2028.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn vísar fjárhagsáætlun Vopnafjarðarhrepps fyrir árið 2025 og þriggja ára áætlun fyrir árin 2025 til 2028 til síðari umræðu í sveitarstjórn.
Til máls tóku Björn Heiðar Sigurbjörnsson, Bjartur Aðalbjörnsson, Valdimar O. Hermannsson og Axel Örn Sveinbjörnsson.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Gjaldskrár og útsvar
Lagðar fram tillögur að forsendum að gjaldskrá og útsvari 2025.
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.
Efitrfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir tillögu hreppsráðs að almenn hækkun á gjaldskrám verði 3,5%. Útsvarsprósenta verður óbreytt eða 14,97%. Gjaldskrár samkvæmt þessari ákvörðun verða lagðar fram við síðari umræðu um fjárhagsáætlun 12. desember n.k.
Til máls tóku Björn Heiðar Sigurbjörnsson og Valdimar O. Hermannsson.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Lántaka sveitarfélagsins frá Lánasjóði sveitarfélaga
Sveitarstjóri gerir grein fyrir forsendum á fyrirhugaðri lántöku.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarsjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir hér með á sveitarstjórnarfundi að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga með útgreiðslufjárhæð allt að kr. 200.000.000,- með lokagjalddaga þann 5. nóvember 2055, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum.
Sveitarstjórn samþykkir að til tryggingar á láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar) standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga.
Er lánið tekið til þess að koma til móts við miklar framkvæmdir við Vopnafjarðarhöfn, sem hófust á þessu ári og munu halda áfram á næsta ári ásamt fleiri framkvæmdum sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Valdimari O. Hermannssyni, kt: 110660-3599, sveitarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Vopnafjarðarhrepps að undirrita lánasamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita, gefa út og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Aðalfundur Bustarfells
Sveitarstjóri gerir grein fyrir nýloknum aðalfundi Bustarfells fyrir árið 2024 og tillögum sem þar komu fram um breytingar á rekstri.
Lagt fram til kynningar.
Til máls tóku Axel Örn Sveinbjörnsson, Hafdís Bára Óskarsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Björn Heiðar Sigurbjörnsson.
- Tónlistarskóli Vopnafjarðar, til kynningar
Fyrir liggur minnisblað frá sveitarstóra vegna uppsagnar skólastjóra tónlistarskólans og mögulegar breytingar á rekstrarformi.
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson, Axel Örn Sveinbjörnsson og Bjartur Aðalbjörnsson.
Lagt fram til kynningar.
Bobana óskar eftir stuttu fundarhléi kl. 15:10.
Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Fundur hefst aftur kl. 15:19.
- Loðnubrestur
Í fundargerð Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga nr. 82, 22. október s.l. og Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 953 25. október s.l. er bókað um áhrif loðnubrest á íslenskt efnahagslíf.
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps tekur undir bókun Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga og lýsir yfir þungum áhyggjum af
áhrifum mögulegs loðnubrests á íslenskt efnahagslíf. Ekki síst gætir áhrifanna hjá íbúum og fyrirtækjum í sveitarfélögum þar sem uppsjávarvinnsla er ein af meginstoðum atvinnulífsins. Ef ekki verður loðnuvertíð á næsta ári verður það annað árið í röð sem tekjutap af þeim völdum dynur yfir þessi sveitarfélög og samfélagið allt hér á landi. Jafnframt mun það hafa mjög neikvæð áhrif á hagvöxt á næsta ári sem er grafalvarlegt. Haustmælingar á loðnu gáfu þó vísbendingar um að hægt verði að gefa út upphafskvóta og því leggja Samtök sjávarútvegssveitarfélaga mikla áherslu á að Hafrannsóknarstofnun verði fjárhagslega undir það búin að fara í öflugar bergmálsmælingar í byrjun næsta árs til að hægt sé að ganga úr skugga um hvort ekki sé hægt að heimila þessar þjóðhagslega mikilvægu veiðar. Það er
skýlaus krafa sjávarbyggða á Íslandi að ríkisvaldið sjái til þess að jafn mikilvæg stofnun og Hafrannsóknarstofnun sé fullfjármögnuð og gert kleift að halda úti öflugum rannsóknum á fiskistofnum þjóðarinnar til að hægt sé að tryggja sjálfbærar veiðar sem skipta sköpum fyrir íslenskt efnahagslíf.
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.
Samþykkt samhljóða.
- Uppsögn formanns fjölskylduráðs
Fyrir liggur bréf frá Berglindi Steindórsdóttur, formanni fjölskylduráðs, dagsett 18. nóvember 2024, þar sem hún segir sig frá störfum í ráðinu.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir beiðnina og þakkar Berglindi fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins. Varaformaður tekur við þangað til nýr formaður hefur verið tilnefndur og nýr varamaður kemur inn í staðinn, þangað til formaður hefur verið tilnefndur.
Til máls tók Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir, Axel Örn Sveinbjörnsson og Valdimar O. Hermannsson.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
- Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar
Fyrir liggur minnisblað frá sveitarstjóra um ráðningarferli forstöðumanns þjónustumiðstöðvar, þar sem fram kemur tillaga til sveitarstjórnar um ráðningu.
Bjartur Aðalbjörnsson óskar eftir að fá að víkja af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis. Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Kristrún Ósk Pálsdóttir situr fundinn í stað Bjarts.
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.
Björn Heiðar Sigurbjörnsson óskar eftir að fá að víkja af fundi undir þessum lið vegna vanhæfis. Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Agnar Karl Árnason situr fundinn í stað Björns Heiðars.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir að Bjarti Aðalbjörnssyni verði boðin staða forstöðumanns þjónustumiðstöðvar. Er það mat sveitarstjórnar, sem samrýmist mati ráðgjafa Attentus eftir viðtal að Bjartur mæti þeim menntunar- og hæfniskröfum sem gerðir voru í auglýsingu um starfið. Alls bárust fjórar umsóknir um stöðuna, þar sem tveir uppfylltu kröfur auglýsingar en annar dró umsókn sína til baka. Sveitarstjóra er falið að ganga frá ráðningarsamningi við Bjart og upplýsa aðra umsækjendur um ráðninguna.
Til máls tók Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir, Bobana Micanovic, Sigurður Grétar Sigurðsson og Kristrún Ósk Pálsdóttir.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Kristrún Ósk og Agnar Karl víkja af fundi og inn koma Bjartur og Björn Heiðar.
- Skýrsla sveitarstjóra
Sveitarstjóri fór yfir helstu málefni sveitarfélagsins.
- Hreppsráð Nr. 32
Lagt fram til kynningar.
- Hreppsráð Nr. 33
Lagt fram til kynningar.
- Menningar- og atvinnumálanefnd Nr. 25
Lagt fram til kynningar.
- Ungmennaráð Nr. 10
Lagt fram til kynningar.
- Fjölskylduráð Nr. 27
Lagt fram til kynningar.
Undir lið a. og c. tekur til máls Björn Heiðar Sigurbjörnssson og Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir.
- Aðalfundur HAUST
Lagt fram til kynningar.
- HAUST Nr. 181
Lagt fram til kynningar.
- Aðalfundur Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga
Lagt fram til kynningar.
- Samtök sjávarútvegssveitarfélaga – Nr. 82
Lagt fram til kynningar.
- Samtök sjávarútvegssveitarfélaga – Nr. 83
Lagt fram til kynningar.
- Samband íslenskra sveitarfélaga – Nr. 953
Lagt fram til kynningar.
- Samband íslenskra sveitarfélaga – Nr. 955
Lagt fram til kynningar.
- Menningar- og atvinnumálanefnd - Nr. 24
Undir lið a. taka til máls Bobana Micanovic, Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir, Valdimar O. Hermannsson og Björn Heiðar Sigurbjörnsson.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 16:17.