Fundur nr. 34
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir
NefndarmaðurAxel Örn Sveinbjörnsson
NefndarmaðurSigurður Grétar Sigurðsson
NefndarmaðurBobana Micanovic
NefndarmaðurKristrún Ósk Pálsdóttir
NefndarmaðurSandra Konráðsdóttir
NefndarmaðurHafdís Bára Óskarsdóttir
NefndarmaðurValdimar O. Hermannsson
SveitarstjóriÍris Edda Jónsdóttir
Verkefnastjóri stjórnsýslu, ritariFyrir liggur fyrirmynd af samningi og upplýsingar um heilsueflandi samfélag og afgreiðsla fjölskylduráðs.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps staðfestir tillögu hreppsráðs um að gerast aðili að Heilsueflandi samfélagi hjá landlækni. Sveitarstjóra er falið að ganga frá umsókn og samningi.
Fyrir liggur erindi frá fjölskylduráði um bætta lýsingu á bílastæðið við Selárlaug.
Fyrir liggur beiðni um afnot af íþróttahúsi fyrir styrktartíma eldri borgara.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi beiðni með fyrirvara um lausa tíma í íþróttahúsinu til að mæta óskum.
Fyrir liggur grunnur að nýju lóðarblaði fyrir Hafnarbyggð 49, þar sem lóðarblað var ekki til fyrir lóðina.
Fyrir liggur auglýsing fyrir umsóknir til Framkvæmdasjóðs ferðamannastaða. Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur styrkbeiðni frá Kvennaathvarfinu.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps vísar erindinu til fjárhagsáætlunagerðar 2025.
Fyrir liggur beiðni um umsögn frá matvælaráðuneytinu til sveitarstjórnar Vopnafjarðarhrepps vegna jarðarkaupa Brims hf. á býlinu Egilstöðum, á grundvelli 10. gr. a jarðalaga nr. 81/2004.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra og skipulags- og byggingarfulltrúa að vinna umsögn sem send verður í samráði við sveitarstjórn.
Fyrir liggur tilboð frá Vinnuvélar & Ásafl ehf. á nýjum löndunarkrana.
Hafnasambandsþingið verður haldið í Hofi á Akureyri, 24.- 25. október 2024.
Lögð hafi verið fram drög að kaupsamningi við AFL Starfsgreinafélag vegna kaupa sveitarfélagsins á Lónabraut 4, Vopnafirði, fnr. 2171969 og 2171970, m.v. kaupverð 19.900.000 kr.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps gefur Valdimar O. Hermannssyni, sveitarstjóra, fullt og ótakmarkað umboð til að ganga frá endanlegum samningnum og skrifa undir nauðsynleg skjöl í því skyni. Hluti af kaupverðinu sé greitt með því að AFL Starfsgreinafélag taki á leigu herbergi 4 í Kaupvangi af sveitarfélaginu og sé sveitarstjóra jafnframt falið að ganga frá húsaleigusamningi vegna þess.
Sveitarstjóri fór yfir helstu mál sveitarfélagsins og svaraði spurningum.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar
Lagt fram til kynningar.
Til máls tók Valdimar O. Hermannsson.