Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 17

Kjörtímabilið 2022—2026

24. ágúst 2023

kl. 14:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 24. ágúst 2023 í félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00. Í upphafi fundar var leitað afbrigða með því að bæta inn erindinu: „Ráðning forstöðumanns áhaldahúss". Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

1. Erindi#1-erindi

  • Erindi frá hrepps­ráði – Breyt­ingar á sorp­hirðu, minn­is­blað 070723 til kynn­ingar

    Lagt fram til kynningar minnisblað um breytingar á sorphirðu sem vísað var til sveitarstjórnar til kynningar frá hreppsráði. Hreppsráð leggur til við sveitarstjórn að stofna vinnuhóp sem fundar reglulega frá og með hausti til að útfæra fyrirkomulag sorphirðu á Vopnafirði vegna nýrra laga sem tóku gildi 1. janúar 2023. Í vinnuhópnum eru: sveitarstjóri, fjármálastjóri, fulltrúi frá þjónustumiðstöð og tveir fulltrúar úr sveitarstjórn.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn skipar tvo fulltrúa, Bjart Aðalbjörnsson og Sigurð Grétar Sigurðsson fyrir hönd sveitarstjórnar í vinnuhópinn.

    Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson og Sara Elísabet Svansdóttir.

    Tillagan er borin upp til samþykktar.
    Samþykkt samhljóða.

  • Tillaga að reglum um akst­urs­þjón­ustu til kynn­ingar

    ​Framlögð drög að reglum um akstursþjónustu aldraðra til kynningar.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn vísar drögum að reglum um akstursþjónustu aldraðra til umsagnar í fjölskylduráði.

    Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson og Sara Elísabet Svansdóttir.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Erindi frá hrepps­ráði: Samkomulag vegna álits frá umboðs­manni Alþingis vegna ráðn­ingar aðstoð­ar­skóla­stjóra - trún­að­armál, til kynn­ingar

    ​Lagt fram til kynningar.

    Til máls tók Sara Elísabet Svansdóttir


  • Erindi frá fjöl­skyldu­ráði: tillögur að fjár­hags­áætlana­gerð 2024

    ​Bornar voru fram tillögur til fjárhagsáætlanagerðar frá fundi fjölskylduráðs, 15. ágúst 2023.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn vísar tillögunum til fjárhagsáætlanagerðar 2024.

    Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson, Sara Elísabet Svansdóttir, Axel Örn Sveinbjörnsson og Björn Heiðar Sigurbjörnsson.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

    Bjartur Aðalbjörnsson leggur fram eftirfarandi breytingartillögu: Sveitarstjórn samþykkir að vísa öllum liðum til fjárhagsáætlanagerðar 2024 að undanskildum liðum b. og f. og þakkar fjölskylduráði fyrir tillögurnar og felur sveitarstjóra að upplýsa fjölskylduráð um stöðu tillagna.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Ársskýrsla HAUST 2022, til kynn­ingar

    ​Lagt fram til kynningar

  • Umsókn um íbúð í Sundabúð

    ​Lögð fram umsókn um íbúð í Sundabúð með hjólastólaaðgengi. 

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn vísar því til fjárhagsáætlunargerðar 2024 að íbúð í Sundabúð verði gerð upp með tilliti til aðgengismála og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram.

    Til máls tóku: Axel Örn Sveinbjörnsson, Bjartur Aðalbjörnsson og Sara Elísabet Svansdóttir.

    Tillagan borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða. 

  • Ráðning forstöðu­manns áhalda­húss

    ​Hafdís Bára Óskarsdóttir óskar eftir að víkja af fundi. Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

    Hafdís Bára víkur af fundi. Kristrún Ósk Pálsdóttir kemur inn á fund. Lögð fram gögn vegna ráðningar forstöðumanns áhaldahúss.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn samþykkir að Gunnþóri K. Guðfinnssyni verði boðin staða forstöðumanns áhaldahúss. Gunnþór er garðyrkjufræðingur að mennt með reynslu af stjórnun þjónustumiðstöðvar. Er það mat sveitarstjórnar, sem samrýmist mati ráðgjafa, að Gunnþór mæti best þeim kröfum sem og öðrum hæfniþáttum sem gerðir eru í auglýsingu um starfið. Alls bárust fjórar umsóknir um stöðuna. Sveitarstjóra er falið að ganga frá ráðningarsamningi við Gunnþór og upplýsa aðra umsækjendur um ráðninguna. 

    Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson, Sara Elísabet Svansdóttir, Axel Örn Sveinbjörnsson og Björn Heiðar Sigurbjörnsson.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
    Kristrún Ósk Pálsdóttir víkur af fundi. Hafdís Bára kemur inn á fund.

2. Fundargerðir til staðfestingar#2-fundargerdir-til-stadfestingar

  • Hreppsráð 6.7

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Hreppsráð 10.8

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Fjöl­skylduráð 15.8

    ​Lagt fram til kynningar.

    Til máls tóku: Bjartur Aðalbjörnsson og Sara Elísabet Svansdóttir


Almenn mál#almenn-mal

  • Skýrsla sveit­ar­stjóra

    ​Sveitarstjóri fór yfir verkefni sveitarfélagsins og svaraði spurningum.

    Til máls tóku: Sara Elísabet Svansdóttir, Björn Heiðar Sigurbjörnsson og Bjartur Aðalbjörnsson.

Fleira var ekki tekið fyrir á fundi slitið kl. 15:09.