Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 10

Kjörtímabilið 2022—2026

22. desember 2022

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 14:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 22.desember 2022 í félagsheimilinu Miklagarði kl 14:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Samn­ingur um rekstur umdæm­is­ráðs barna­verndar á landsvísu

    ​Fyrir liggur uppfærður samningur að umdæmisráði barnaverndar á landsvísu, verklagsregla um framkvæmd umdæmisráðs og vinnuskjal um fyrirkomulag umdæmisráðs vegna reksturs umdæmisráðs barnaverndar á landsvísu. 


    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi samning og felur sveitarstjóra að undirrita samning um umdæmisráð barnaverndar. 

    Til máls tóku Hafdís Bára Óskarsdóttir, Sandra Konráðsdóttir og Sara Elísabet Svansdóttir.

    Tillagan er borin upp til samþykktar.
    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

  • Hækkun útsvarsálagn­ingar vegna fjár­mögn­unar þjón­ustu við fatlað fólk.

    ​Fyrir liggur samkomulag á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.12.2022, varðandi fjármögnun þjónustu við fatlað fólk og hækkun útsvarsálagningar.

     
    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum.
    Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.12.2022, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 16.12.2022, samþykkir sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2023 hækki um 0,22% og verði 14,74%.

    Til máls tóku Sara Elísabet Svansdóttir og Björn Heiðar Sigurbjörnsson.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram: Með vísan til ákvæða varðandi breytingu á fjármögnun á þjónustu við fatlað fólk í fyrirliggjandi samkomulagi á milli ríkis og sveitarfélaga, dags. 16.12.2022, er byggir á breytingu á lögum um tekjustofna sveitarfélaga sem samþykkt var á Alþingi 16.12.2022, samþykkir sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps að álagningahlutfall útsvars fyrir árið 2023 hækki um 0,22% og verði 14,74%. Þar sem ríkið mun lækka tekjuskattsálagningu sína um samsvarandi hlutfall munu skattgreiðendur ekki verða fyrir skattahækkun eða lækkun vegna þessa.
     
    Tillagan er borin upp til samþykktar.
    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 14:12.