Sveit­ar­stjórn

Fundur nr. 58

Kjörtímabilið 2018—2022

2. desember 2021

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:30
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps 2.desember 2021 í félagsheimilinu Miklagarði kl 08:30.

1. Fundargerðir#1-fundargerdir

  • Aðal­fundur Heil­brigðis­eft­ir­lits Aust­ur­lands bs. 3.11

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Skipu­lags- og umhverf­is­nefnd 23.11


    i.      Björgunarsveitin Vopni – lóðarumsókn

    Fyrir liggur umsókn um stofnun lóðar frá Björgunarsveitinni Vopna. Sveitarstjórn samþykkir erindið um stofnun lóðarinnar samkvæmt fyrirliggjandi gögnum. Lóðin mun bera nafnið Urðarkambur. Samþykkt samhljóða.

    ii.      Deiliskipulag miðhluta hafnarsvæðis – breytingatillaga

    Auglýsingu breytingar á deiliskipulagi fyrir miðhluta hafnarsvæðis er lokið. Athugasemd barst frá Árna Magnússyni. Sveitarstjórn fór yfir athugasemdirnar. Hvað varðar nöfn gatna og lóða samþykkir sveitarstjórn að skoða ábendingu um að lóðirnar teljist allar tilheyra Hafnarbyggð og telur að það gæti verið til einföldunar og jafnvel skýrara og beinir því til ráðgjafa að skoða þetta betur. Sveitarstjórn bendir á að ákvörðun um hæð bygginga er til að koma til móts við þarfir Brims vegna fyrirhugaðrar uppbyggingar og telur að tilgreind hæð sé ákvörðuð af brýnni nauðsyn. Með því að þetta er samfellt athafnasvæði Brims telur sveitarstjórn ekki sérstaka þörf á aðkomuleið á milli bygginga til viðbótar við það sem skipulagið gerir ráð fyrir. Lenging á viðlegukanti að Ásgarði var ekki hluti af þessari breytingu og kallar að mati sveitarstjórnar á breytingu á skipulaginu sem er ekki viðfangsefni þessarar tillögu. Sveitarstjórn telur ekki að athugasemdirnar kalli á frekari breytingu á skipulagstillögunni eins og hún var auglýst og samþykkir breytingu á deiliskipulagi fyrir miðhluta hafnarsvæðisins. Samþykkt samhljóða.

    Að öðru leyti er fundargerðin lögð fram til kynningar.


  • Æsku­lýðs- og íþrótta­nefnd 25.11

    ​Lögð fram til kynningar fundargerð æskulýðs- og íþróttanefndar frá 25.11.21. Sveitarstjórn tekur undir tillögu æskulýðs- og íþróttanefndar vegna aldurstakmarks í líkamsrækt Vopnafjarðarhrepps.  Samþykkt samhljóða.

2. Almenn mál#2-almenn-mal

  • Félags­legar íbúðir sveit­ar­fé­lagsins – minn­is­blað

    ​Lagt fram til kynningar minnisblað um félagslegar íbúðir sveitarfélagsins. Sveitarstjórn samþykkir að setja Þverholt 3 á söluskrá og felur sveitarstjóra að vinna málið áfram. Samþykkt með fimm atkvæðum meirihlutans. Bjartur Aðalbjörnsson og Björn Heiðar Sigurbjörnsson greiða atkvæði á móti.

    Bókun minnihlutans: Samfylkingin telur ekki tímabært að ræða sölu á íbúðinni og greiðir þess vegna atkvæði á móti.  


  • Mötu­neyt­ismál í Vopna­fjarð­ar­hreppi – minn­is­blað

    ​Lagt fram til kynningar minnisblað um mötuneytismál í Vopnafjarðarhreppi. Sveitarstjórn samþykkir að framlengja samninginn varðandi rekstur mötuneyta í  skóla og leikskóla út skólaárið 2022 og fara í útboð á næsta ári. Sveitarstjóra falið að vinna málið áfram. Samþykkt samhljóða.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:16.