Fundur nr. 2
Kjörtímabilið 2026—2030
Kjörtímabilið 2026—2030
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Ekki hefur verið auglýst eftir umsóknum í menningarsjóð Vopnafjarðar.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að auglýst verði eftir umsóknum frá og með 1. október og verði umsóknarfrestur því til 1. nóvember. Sveitarstjóra falið að birta auglýsingu á heimasíðu sveitarfélagsins.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur að skipa viðburðarhóp sem mun halda utan um alla helstu viðburði sveitarfélagsins.
Fyrir liggur erindi frá sveitarstjórn um að nefndin skipi 5 fulltrúa í spretthóp um atvinnumál í Vopnafirði, þar sem stefnt er að því að ráða tímabundinn verkefnastjóra til greiningar á tækifærum í nýsköpun og atvinnuuppbyggingu á Vopnafirði. Fram komu tillögur af aðilum til að starfa í hópnum.
Rætt var um að breyta fyrirkomulagi launagreiðslna í tengslum við menningarviðburði fyrir bætta yfirsýn.
Farið yfir þá helstu viðburði sem verið hafa í sveitarfélaginu og sem stefnt er að á komandi ári.
Rætt um þörfina á því að ráðinn yrði menningar- og ferðamálafulltrúi til sveitarfélagsins, en nefndin telur að það gæti eflt þessi mál til muna.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Menningar- og atvinnumálanefnd leggur til við sveitarstjórn að skoða möguleika á að ráða í stöðu menningar- og ferðamálafulltrúa.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Farið yfir alla þá styrki sem sveitarfélagið hefur möguleika á að sækja um og vinnur nefndin í því að setja upp dagatal fyrir þær dagsetningar sem fram undan eru fyrir umsóknir. Lagt fram til kynningar.
1. Nefndin felur sveitarstjóra að kanna möguleika á því að nefndin fái fund með Austurbrú þar sem farið væri yfir styrkjamöguleika og annað sem sveitarfélagið geti nýtt stuðning Austurbrúar í.