Fundur nr. 1
Kjörtímabilið 2026—2030
Kjörtímabilið 2026—2030
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 09:30
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Sr. María Guðrún Ljungberg mætir á fund undir þessum lið og ræðir fyrirkomulag vinaviku kirkjunnar.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Menningar- og atvinnumálanefnd samþykkir að veita kirkjunni afnot af félagsheimilinu Miklagarði og Selárdalslaug í tengslum við vinaviku.
Erindisbréf nefndarinnar lagt fram og yfirfarið. Erindisbréfið verður birt á vefsíðu sveitarfélagins. Lagt fram til kynningar.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Lagt er til að Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir verði formaður menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Lagt er til að Helga Kristín Tryggvadóttir verði varaformaður menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Rætt um hlutverk og framtíðaráherslur menningar- og atvinnumálanefndar. Nefndin telur mikilvægt að byggja áfram á öflugu menningar- og viðburðastarfi sveitarfélagsins en jafnframt leggja aukna áherslu á atvinnumál og tengsl sveitarfélagsins við atvinnulífið.
Fundartími menningar- og atvinnumálanefndar er samkvæmt dagskrá annan miðvikudag í mánuði kl. 08:30.
Engin mál voru rædd undir þessum lið.