Fundur nr. 37
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:30
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Fanney Björk Friðriksdóttir
FormaðurUrður Steinunn Önnudóttir Sahr
NefndarmaðurHeiðbjört Marín Óskarsdóttir
NefndarmaðurGulmira Kanakova
NefndarmaðurBobana Micanovic
NefndarmaðurEin umsókn hefur borist í Menningarsjóð Vopnafjarðarhrepps en umsóknarfresti lauk 1. apríl sl.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir, Ásmundur Ingjaldsson, Stefán Hrafnsson og Berglind Steindórsdóttir sækja um styrk fyrir skautasvelli/útivistarsvæði. Sótt er um 200.000 kr. Menningar- og atvinnumálanefnd tekur vel í umsóknina og óskar eftir frekari upplýsingum.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Lagt er til að skipaður verði sérstakur verkefnahópur um undirbúning og framkvæmd bæjarhátíðarinnar Vopnaskaks og að hátíðin verði færð frá menningar- og atvinnumálanefnd til þessa hóps í ár undir handleiðslu formanns nefndarinnar.