Menn­ingar- og atvinnu­mála­nefnd

Fundur nr. 31

Kjörtímabilið 2022—2026

12. júní 2025

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 11:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 31 kjörtímabilið 2022-2026 í menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps haldinn á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 11. júní klukkan 08:30.

1. Erindi#1-erindi

  • Nýting­ar­mið­stöð á Vopna­firði, til kynn­ingar

    ​Rögnvaldur Þorgrímsson, verkefnastjóri Nýtingarmiðstöðvar á Vopnafirði (NÁV) mætti á fund og hélt kynningu á verkefninu. Farið var yfir meginmarkmið miðstöðvarinnar, skipulag, hugsanlega starfsemi og hlutverk hennar í atvinnu- og nýsköpunarumhverfi svæðisins. Einnig var gerð grein fyrir núverandi stöðu verkefnisins, helstu áskorunum og næstu skrefum.

  • Bust­ar­fell, til kynn­ingar

    ​Nefndin fékk kynningu á nýráðnum safnstjóra Bustarfells og fyrirkomulagi safnsins fyrir sumarið 2025.

  • Visit vefur Vopna­fjarðar

    ​Nefndin ræddi innihald visit vefs Vopnafjarðar og hvað megi betrumbæta á vefnum.

  • Vopna­skak

    ​Umræður um það helsta við undirbúning og stöðu mála vegna bæjarhátíðarinnar.

  • Menn­ing­ar­sjóður Vopna­fjarðar: Loka­skýrsla skipti­mark­aðar í NÁV

    ​Lagt fram til kynningar.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:21.