Menn­ingar- og atvinnu­mála­nefnd

Fundur nr. 5

Kjörtímabilið 2022—2026

14. desember 2022

Félagsheimilið Mikligarður kl. 08:30
Signý Björk Kristjánsdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í menningar- og atvinnumálanefnd Vopnafjarðarhrepps miðvikudaginn 14.12.2022 í Miklagarði kl 8:30.

1. Almenn mál#1-almenn-mal

  • Jóla­ball

    ​Jólaballið verður haldið í Miklagarði miðvikudaginn 28. desember klukkan 15.

    Búið er að ræða við tónlistarmenn sem hyggjast spila.

    Jólasveinar hafa fengið boð um viðburðinn og verður því fylgt eftir að þeir mæti.

    Menningar- og atvinnumálanefnd hefur umsjón með kaffihlaðborði í samstarfi við félagsheimilið Miklagarð.


  • Önnur mál

    ​Upp kom hugmynd um að útbúa viðburðadagatal (lifandi skjal) fyrir nefndina til að hafa betri yfirsýn yfir þá föstu viðburði sem nefndin hefur umsjón með.

    Fanney Björk og Dagný útbúa skjalið og dreifa til nefndarmanna.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 9:00.