Kjör­stjórn

Fundur nr. 2

Kjörtímabilið 2026—2030

26. ágúst 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 16:00
Dagný Steindórsdóttir ritaði fundargerð

Fundur kjörstjórnar Vopnafjarðarhrepps 26/08/26 kl 16:00. Til umræðu á fundinum var að fara yfir kjörgögn og skipuleggja kjördag 29/08/26.

1. Erindi#1-erindi

  • Kjör­gögn og skipu­lagning kjör­dags

    ​Kjörgögn voru sótt mánudaginn 24/08/26 kl. 18:20 á Akureyri af Bjarna og Dagnýju. Þeim var svo keyrt til Vopnafjarðar og sett innsigluð með raðnúmeri K00065030 í gamla kjörkassa vopnafjarðarhrepps á hreppsskrifstofu við Hamrahlíð 15, 690 Vopnafirði. Þá var kassanum læst með hengilási og lykill geymdur á heimili Bjarna.

    Í dag voru kjörgögn sótt og talin. Staðfestist hér með að okkur bárust 500 kjörseðlar eins og gert var ráð fyrir. Á kjörskrá eru 447 á viðmiðunardegi og eru kjörseðlar þá rúmlega 10% fleiri en þarf.

    Raðnúmer innsigla á utankjörfundaratkvæða kassa eru eftirfarandi:
    L16225, L16226, L16227, L16228.

    Raðnúmer innsigla á kjörkassa merktur Vopnafjörður eru eftirfarandi:
    L11577, L11578, L11579, L11580.

    Raðnúmer innsigla á kjörkassa merktur Norðausturkjördæmi eru eftirfarandi:
    L11582, L11583, L11584, L26773.

    Kjörgögn sett aftur í kassann sem þau voru sendi í eftir talningu og innsigluð með raðnúmeri K00057301. Sá kassi settur aftur í gamla kjörkassann og læst með hengilási.

    Farið yfir samtal milli Bjarna og Sigmundar Guðmundssonar frá yfirkjörstjórn norðausturkjördæmis þess efnis að kjörgögn verða sótt af Björgunarsveitinni Vopna eftir lokun kjörstaðs á laugardaginn 29/08/26.


Fundi slitið 17:03.