Fundur nr. 2
Kjörtímabilið 2026—2030
Kjörtímabilið 2026—2030
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:00
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Katrín Pálsdóttir, starfandi fjármálastjóri, tengdist fundinum undir þessum lið um fjarfundarbúnað og fór, ásamt staðgengli sveitarstjóra, yfir stöðu mála við fjárhagsáætlunargerð fyrir árin 2027 og 2028-2030.
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggja tillögur að samningum um minka-, refaveiðar og grenjavinnslu í Vopnafjarðarhreppi.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð samþykkir að fela formanni og staðgengli sveitarstjóra að funda með veiðimönnum með það að markmiði að ná samkomulagi um uppgjör vegna yfirstandandi veiðitímabils er byggi á eldri samningum, sem eru úr gildi fallnir, sem og á fyrirliggjandi tillögum.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.
Fyrir liggur boðun ársfundar Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum sem haldinn verður miðvikudaginn 7. október nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð samþykkir að Björn Ingimarsson, staðgengill sveitarstjóra, mæti á ársfund Samtaka sveitarfélaga á köldum svæðum í umboði Vopnafjarðarhrepps.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur boðun aðalfundar Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 7. október nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð samþykkir að Björn Ingimarsson, staðgengill sveitarstjóra, mæti á aðalfund Samtaka sjávarútvegssveitarfélaga í umboði Vopnafjarðarhrepps.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur boðun ársfundar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga sem haldinn verður miðvikudaginn 7. október nk.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð samþykkir að Björn Ingimarsson, staðgengill sveitarstjóra, mæti á ársfund Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga í umboði Vopnafjarðarhrepps.
Samþykkt samhljóða.
Bókun fjölskylduráðs og minnisblað starfsmanns fjölskylduráðs
Fyrir liggur bókun fjölskylduráðs, dags. 1. september 2026, þar sem m.a. er lagt til að hjólarampur verði fjarlægður strax og útisvæði við Sundabúð verði lagað sem fyrst. Einnig liggur fyrir minnisblað starfsmanns fjölskylduráðs þar sem farið er yfir eldri afgreiðslur málsins í nefndum og ráðum sveitarfélagsins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð samþykkir að fela staðgengli sveitarstjóra að sjá til þess að hjólarampur fari í söluferli og verði fjarlægður sem fyrst.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur minnisblað frá lögreglu varðandi úrbætur gangbrauta í þorpinu auk ábendinga um ýmislegt annað.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð samþykkir að vísa málinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs til vinnslu með áherslu á þarfagreiningu og forgangsröðun.
Samþykkt samhljóða.
Fyrir liggur erindi varðand framlengingu á leigusamningi Þorbrandsstaða.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð samþykkir að leggja til við sveitarstjórn að eignin verði auglýst til leigu er núverandi leigusamningur rennur út um næstkomandi áramót.
Samþykkt samhljóða.
Lagt fram til kynningar.