Hreppsráð
Fundur nr. 1
Kjörtímabilið 2026—2030
9. september 2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 14:00
Björn Ingimarsson ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur nr. 1 í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2026-2030, miðvikudaginn 9. september 2026 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 14:00
- Prókúra staðgengils sveitarstjóra
Fyrir liggur að veita þarf Birni Ingimarssyni, staðgengils sveitarstjóra, prókúruumboð fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að veita Birni Ingimarssyni, kt. 301254-4079, prókúruumboð fyrir hönd Vopnafjarðarhrepps.
Samþykkt samhljóða.
- Minnisblað vegna breytinga á heilbrigðiseftirliti
Framlagt minnisblað, til kynningar, um breytingar á heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga sem taka á gildi 1. janúar 2027.
Vísað til kynningar í umhverfis- og framkvæmdaráði.
- Flugsamgöngur á Vopnafirði
Fyrir liggja upplýsingar þar sem staðfest er að fækka eigi flugferðum til Vopnafjarðar niður í þrjár ferðir á viku sökum niðurskurðar frá ríkinu og daprar nýtingar.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps hvetur stjórnvöld til að sjá til þess að fallið verði frá fyrirhuguðum áformum um fækkun flugferða til Vopnafjarðar. Sveitarstjóra falið að koma þessu á framfæri við fulltrúa Vegagerðarinnar og innviðaráðherra.
Samþykkt samhljóða
- Staða mála á Bustarfelli
Fyrir liggur minnisblað um stöðu mála varðandi rekstur Minjasafnsins á Bustarfelli.
Vísað til menningar- og atvinnumálanefndar til umfjöllunar.
- Starf skrifstofustjóra
Til umfjöllunar er ráðning í starf skrifstofustjóra Vopnafjarðarhrepps.
Samþykkt að ganga til samnings við fagaðila um að sinna starfinu
tímabundið en auglýsa að nýju fyrir lok maí á næsta ári.
- Verkefnið Brothættar byggðir
Fyrir liggur erindi frá Byggðastofnun varðandi verkefnið Brothættar byggðir. Hreppsráð felur Sveitarstjóra að vera í sambandi við fulltrúa Byggðastofnunar varðandi það að fá kynningu á verkefninu á næstu
vikum.
- Stjórn Sambands íslenskra sveitarfélaga nr. 1001
Fundargerð lögð fram til kynningar.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 15:05.