Fundur nr. 56
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:15
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð
Grenjavinnsla Fyrir liggur að uppfæra eigi samninga um grenjavinnslu í sveitarfélaginu fyrir veiðitímabil 2026.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að fela sveitarstjóra að vinna að og gera samninga við veiðimenn um grenjavinnslu og refaveiðar innan sveitarfélagsins, samkvæmt gildandi lögum og reglum um refa- og minkaveiðar.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Lögð voru fram drög að hagræðingartillögum frá úttektaraðila. Hreppsráð hefur farið yfir framkomnar tillögur og rætt efni þeirra.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að vísa þeim tillögum sem ráðið telur fýsilegastar og raunhæfar til frekari umfjöllunar í sveitarstjórn. Jafnframt er gert ráð fyrir að málið verði tekið til áframhaldandi vinnslu og ákvörðunar hjá komandi sveitarstjórn.
Forstöðumaður þjónustumiðstöðvar fór yfir stöðu framkvæmda í sveitarfélaginu.