Fundur nr. 50
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 09:00
Fyrir liggur tilboð vegna eftirfylgni mannauðsráðgjafa í framhaldi af vinnu sem fór fram í febrúar á vegum Saga C.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps felur starfandi sveitarstjóra að skoða málið.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Íris Edda fór yfir breytta stöðu samnings menningar- nýsköpunar og háskólaráðuneytis vegna Kaupvangs og kynnti jafnframt niðurstöðu eftir heimsókn ráðuneytisins til Vopnafjarðar. Lagt fram til kynningar.
Kjartan Elíasson frá Vegagerðinni kom inn á fund og fór yfir stöðu mála á fyrirhuguðum hafnarframkvæmdum.
Lánsumsókn Vopnafjarðar að fjárhæð 135 m.kr. hefur verið samþykkt hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar samþykkt ráðuneytis á tillögu sveitarstjórnar um sérstök skilyrði (sérreglur) vegna byggðakvóta fiskveiðiárið 2025/2026.
Farið var yfir stöðu framkvæmda í sveitarfélaginu.