Fundur nr. 49
Kjörtímabilið 2022—2026
Kjörtímabilið 2022—2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 09:15
Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir ritaði fundargerð
Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir
FormaðurAxel Örn Sveinbjörnsson
OddvitiSigríður Indriðadóttir
MannauðsráðgjafiBjörn Ingimarsson
RáðgjafiBjörn Heiðar Sigurbjörnsson
NefndarmaðurÍris Edda Jónsdóttir
Verkefnastjóri stjórnsýsluSigríður Indriðadóttir mannauðsfræðingur kom inn á fundinn og gerði grein fyrir vinnu sinni síðustu daga.
Stjórn Framkvæmdasjóðs aldraðra auglýsir eftir umsóknum um framlög úr Framkvæmdasjóði aldraðra fyrir árið 2026. Hlutverk sjóðsins er að stuðla að uppbyggingu og efla öldrunarþjónustu um allt land og er opið fyrir umsóknir til kl. 16:00 23. febrúar næstkomandi.
Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps vísar erindinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs og stýrihóps fyrir leiguhúsnæði Vopnafjarðarhrepps til umsagnar.
Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.
Ár er liðið af tveggja ára uppsagnafresti leigusamnings Þorbrandsstaða og fyrir liggja umbeðin gögn um stöðu reksturs.
Fyrir fundinum liggur erindi frá tveimur íbúum þar sem hvatt er til formlegrar danskennslu í tengslum við íþróttakennslu Vopnafjarðarskóla.
Björn Ingimarsson, ráðgjafi, mætir á fundinn vegna úttektar á rekstri A hluta sveitarfélagsins auk skoðunar á samstarfsmöguleikum á svæðinu.
Íris Edda Jónsdóttir sat einnig fundinn undir þessum lið.
Opnað hefur verið fyrir umsóknir um stofnframlög HMS til byggingar eða kaupa á almennum íbúðum. Umsóknafrestur er frá 5. febrúar—5. mars. Lagt fram til kynningar.