Hreppsráð

Fundur nr. 48

Kjörtímabilið 2022—2026

8. janúar 2026

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:15
Aðalbjörg Ósk Sigmundsdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2022-2026, fimmtudaginn 8. janúar 2026 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 08:15.

1. Erindi#1-erindi

  • a. Áætlun EFLU í ráðgjaf­ar­vinnu vegna úttekt á vatns­veitu Vopna­fjarðar

    ​Farið var yfir áætlun EFLU um úttekt á vatnsveitu Vopnafjarðar.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir fyrirliggjandi áætlun og vísar erindinu til Umhverfis og framkvæmdaráðs til kynningar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða.


  • Loka­út­tekt vegna fram­kvæmda við Háholt 6, til kynn­ingar

    Lokaúttekt vegna byggingar Vallarhúss við Háholt. Lagt fram til kynningar.

  • Úthlutun byggða­kvóta á fisk­veiði­árinu 2025-2026

    ​Vopnafjarðarhreppi hefur verið ráðstafað 108 tonnum til úthlutunar.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps vísar erindinu fyrir menningar- og atvinnumálanefnd til umsagnar og felur sveitarstjóra að vinna drög að sérreglum og leggja fyrir sveitarstjórn til samþykktar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Umsókn um framlag úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga

    Jöfnunarsjóður sveitarfélaga hefur samþykkt að veita Vopnafjarðarhreppi framlag að fjárhæð 5 mkr. til að standa straum af óháðri úttekt á rekstri sveitarfélagsins.


    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð fagnar ofangreindri afgreiðslu ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs og felur sveitarstjóra að ganga frá samningi við Björn Ingimarsson, ráðgjafa/verktaka og fyrrum sveitarstjóra bæði Fljótsdalshéraðs/Múlaþings og Þórshafnar, um að vinna við úttekt á rekstri A-hluta sveitarfélagsins auk skoðunar á samstarfsmöguleikum á svæðinu.  Gert er ráð fyrir að verktaki/ráðgjafi kynni niðurstöður sínar í síðasta lagi um miðjan mars næstkomandi samkvæmt drögum af samning sem kynnt eru á fundinum.


    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Breyting á 4. gr. fylgiskjals I við reglu­gerð nr. 1212/2015 um bókhald, fjár­hags­áætlanir og ársreikn­inga sveit­ar­fé­laga, til kynn­ingar

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Bréf Samkeppnis­eft­ir­litsins til sveit­ar­fé­laga

    ​Fyrir liggur beiðni frá Samkeppniseftirlitinu um árlegan heildarkostnað sveitarfélagsins vegna kaupa á úrgangsþjónustu frá árinu 2019 til dagsins í dag vegna rannsóknar hvort Terra umhverfisþjónusta hf. og Kubbur ehf. hafi brotið gegn banni 10. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005 og 1. mgr. 53. gr EES- samningsins með ólögmætu samráði í tengslum við úrgangsþjónustu.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra að svara beiðninni.

    Tillagan er borin upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða

  • Vinnu­stofur og fundir með staf­rænu teymi Sambandsins, til kynn­ingar

    ​Lagt fram til kynningar.

  • Umsagn­ar­beiðni vegna umsóknar veit­inga­leyfis, Spicehaus ehf.

    ​Með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald og 26. og 27. gr. reglugerðar nr. 1277/2016 er óskað eftir umsögn Vopnafjarðarhrepps vegna umsóknar veitingaleyfis Spicehaus ehf. að Hafnarbyggð 4a.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps veitir jákvæða umsögn vegna umsóknar um veitingarleyfi að Hafnarbyggð 4a.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða. 


  • Minn­is­blað um varma­dælur og húshitun, til kynn­ingar

    ​Lagt fram til kynningar minnisblað frá Eyglóarverkefni Austurbrúar um eftirfylgni fundar sem haldinn var á Vopnafirði 4. desember 2025 um varmadælur og húshitun.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps vísar erindinu til umhverfis- og framkvæmdaráðs og menningar- og atvinnumálanefndar til kynningar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða.


  • Aðkeypt mannauðs­stjórnun, fagleg úttekt á vinnu­um­hverfi.

    ​Legið hefur fyrir að fá inn aðkeypta mannauðsstjórnun til að veita ráðgjöf og fá faglega úttekt á vinnuumhverfi.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð samþykkir að fenginn verði aðkeypt, óháð mannauðs- og vinnuumhverfisþjónusta til að meta starfsumhverfi og samskiptahætti innan sveitarfélagsins og leggja fram tillögur að viðeigandi næstu skrefum og felur oddvita að leitast eftir ráðgjafa.

    Tillagan er borin upp til samþykktar.  Samþykkt samhljóða. 

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 08:47.