Hreppsráð

Fundur nr. 41

Kjörtímabilið 2022—2026

5. júní 2025

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 15:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2022 - 2026, fimmtudaginn 5. júní 2025 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 08:15. Í upphafi fundar var óskað eftir að taka inn með afbriðgum erindið Umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfisumsóknar fyrir Veiðihúsið Árhvamm ásamt því að hliðra til dagskrá og verður erindið liður i. Borið upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

1. Erindi#1-erindi

  • Drög að erind­is­bréfi: Skipun í starfshóp leigu­íbúða

    ​Fyrir liggja drög að erindisbréfi fyrir starfshóp um leiguíbúðir í sveitarfélaginu.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps felur sveitarstjóra að fullvinna bréfið og leggja fyrir fjölskylduráð til samþykktar.


    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Umsagn­ar­beiðni fyrir tæki­færis­leyfi USS bistro

    ​Borist hefur umsagnarbeiðni fyrir tækifærisleyfi USS bistro vegna lengri opnunartíma á bæjarhátíðinni Vopnaskak helgina 11.-13. júlí 2025.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við framkomna beiðni.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Heim­sókn frá stjórn Sambandsins á Vopna­fjörð, til kynn­ingar

    ​Stjórn Sambandsins hefur boðað heimsókn sína til sveitarfélaga á Austurlandi dagana 18.-20. júní n.k. og munu heimsækja Vopnafjörð miðvikudaginn 18. júní 2025.

  • Afmæl­is­ráð­stefna Sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga, til kynn­ingar

    ​Borist hefur boð á afmælisráðstefnu Sambandsins í tilefni 80 ára afmælis sem haldið er í Reykjavík 11. júní nk.


    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að sveitarstjóri verði fulltrúi sveitarfélagsins á ráðstefnunni.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.b


  • Ársfundur Brákar, til kynn­ingar

    ​Ársfundur Brákar fer fram í Reykjavík, 11. júní 2025. Lagt fram til kynningar.

  • Fjár­mála­ráð­stefna 2025

    ​Lagt fram minnisblað sveitarstjóra um kostnað við fulltrúa sveitarfélagsins á fjármálaráðstefnu 2025.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps samþykkir að þátttaka á ráðstefnuna verði óbreytt og mögulega endurskoðuð í haust.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt með tveimur atkvæðum. Bjartur Aðalbjörnsson situr hjá.

  • Minja­safnið á Bust­ar­felli, til kynn­ingar

    ​Sveitarstjóri fór yfir stöðu Minjasafnsins, kynnti ráðningu safnstjóra og stöðu rekstrar safnsins.

  • Umsagn­ar­beiðni vegna rekstr­ar­leyf­is­um­sóknar fyrir Veiði­húsið Foss­gerði við Selá

    ​Fyrir liggur umsagnarbeiðni fyrir rekstrarleyfisumsókn fyrir Veiðihúsið Fossgerði við Selá.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við framkomna beiðni.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Umsagn­ar­beiðni vegna rekst­ar­leyf­is­um­sóknar fyrir Veiði­húsið Árhvamm

    ​Fyrir liggur umsagnarbeiðni vegna rekstrarleyfisumsókn fyrir Veiðihúsið Árhvamm.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps gerir ekki athugasemd við framkomna beiðni.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Korta­vefsjá

    ​Fyrir liggur áætlun Eflu um grunnkostnað við uppsetningu vefsjár fyrir sveitarfélagið.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps vísar erindinu til fjárhagsáætlunarvinnu 2026.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.

  • Úrgangsmál í Vopna­fjarð­ar­hreppi

    ​Sveitarstjóri kynnti mögulegar lausnir í úrgangsmálum til lengri og skemmri tíma.

  • Staða fram­kvæmda og fjár­fest­inga 2025

    ​Sveitarstjóri ásamt forstöðumanni áhaldahúss fóru yfir endurskoðun og stöðu framkvæmda og fjárfestinga 2025.

  • Staða fjár­mála hjá sveit­ar­fé­laginu

    ​Katrín Pálsdóttir frá KPMG mætir á fund og fer yfir fjármál sveitarfélagsins.

Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:03.