Hreppsráð

Fundur nr. 40

Kjörtímabilið 2022—2026

8. maí 2025

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 13:00
Íris Edda Jónsdóttir ritaði fundargerð

Fundur haldinn í hreppsráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2022 - 2026, fimmtudaginn 8. maí 2025 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps kl. 13:00.

1. Erindi#1-erindi

  • Ársreikn­ingur 2024

    ​Fulltrúar hreppsráðs hafa fengið kynningu á niðurstöðum ársins 2024 frá endurskoðenda sveitarfélagsins, Ingimar Guðmundssyni frá KPMG.


    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Ársreikningur Vopnafjarðarhrepps vegna 2024 er tilbúinn til endurskoðunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. 

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


  • Endur­skoðun fjár­hags­áætl­unar 2025

    ​KPMG kynnir þrjár sviðsmyndir af mögulegri endurskoðun fjárhagsáætlunar 2025 miðað við breyttar forsendur.

    Eftirfarandi tillaga liggur fyrir fundinum: Hreppsráð Vopnafjarðarhrepps mun vinna málið áfram og leggja fyrir sveitarstjórn til ákvörðunar.

    Tillagan er borin upp til samþykktar. Samþykkt samhljóða.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 13:58.