Hreppsráð

Fundur nr. 11

Kjörtímabilið 2018—2022

10. janúar 2020

Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps, Hamrahlíð 15. kl. 11:00
Sara Elísabet Svansdóttir ritaði fundargerð

1. Fundargerðir#1-fundargerdir

  • Aðal­fundur Héraðs­skjala­safns Aust­firð­inga árið 2019 29.11.

    ​Lagt fram.​

  • 877.fundur stjórnar sambands íslenskra sveit­ar­fé­laga 13.12

    ​Lagt fram.​

  • Fræðslu­nefnd 17.12.

    ​Lagt fram.​

  • Íþrótta- og æsku­lýðs­nefnd 7.1.

    ​1.mál: Heitir pottar við íþróttahús

    Heitir pottar hafa verið í skoðun og verða áfram í skoðun en aðstæður bjóða ekki upp á að ákvörðun verði tekin að svo stöddu. Skoða verði framkvæmdir í og við íþróttahúsið í samhengi við önnur möguleg áform.

    2.mál: Íþróttahús

    Hreppsráð felur sveitarstjóra að fá frekari upplýsingar frá formanni Einherja.

    3.mál: Gjaldtaka á unglinga í líkamsræktina

    Ekki hefur verið um slíka gjaldtöku að ræða og hafa viðkomandi aðilar verið upplýstir um það.

    4.mál: Afsláttur fyrir unglinga á aldrinum 16-18 ára

    Hreppsráð leggur til að árskort í líkamsrækt fyrir ungmenni á aldrinum 16-18 ára verði felld undir frístundastyrk. Vísað til næsta sveitarstjórnarfundar. Samþykkt ​




2. Almenn mál#2-almenn-mal

  • Úthlutun byggða­kvóta til byggð­ar­laga á fisk­veiði­árinu 2019/2020

    ​1. Úthlutun byggðakvóta til byggðarlaga á fiskveiðiárinu 2019/2020

    Hreppsráð fagnar aukningu á úthlutuðum byggðakvóta til Vopnafjarðarhrepps og vísar erindinu til atvinnu- og ferðamálanefndar og óskar eftir afstöðu þeirra til sérstakra skilyrða um úthlutun. Óskað er eftir því að fundargerð berist fyrir 20.janúar næstkomandi.​


  • Samn­ingur um sjúkra­flutn­inga

    ​Lagt fram til kynningar.​

  • Vinnulag vegna fjár­hags­áætl­unar

    ​Hreppsráð felur sveitarstjóra að uppfæra vinnulag vegna fjárhagsáætlunar samanber umræðu á fundi og vísar tillögunni til allra nefnda sveitarfélagsins til kynningar og umsagnar. ​

  • Gáma­flutn­ingar frá Vopna­firði

    ​Hreppsráð samþykkir að farið verði í framkvæmdir fyrir allt að 1.200.000 kr vegna upsetningar á rafmagnstenginum fyrir frystigáma. Leggur jafnframt til að skoðað verði að leggja rafmagn fyrir smábátaaðstöðu norðan við vigtarhúsið í leiðinni.​

Í byrjun fundar var leitað afbrigða um að taka inn á dagskrá erindi frá Brim varðandi gámaflutninga og var það samþykkt samhljóða.