Fjölskylduráð
Fundur nr. 1
Kjörtímabilið 2026—2030
1. september 2026
Skrifstofa Vopnafjarðarhrepps kl. 08:15
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur var haldinn í fjölskylduráði Vopnafjarðarhrepps, kjörtímabilið 2026-2030, þriðjudaginn 1. september 2026 kl. 8:15 á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps.
- Erindisbréf fjölskylduráðs kjörtímabilið 2026-2030
Lagt fram til kynningar.
Tímasetningar funda verða fyrsta þriðjudag í mánuði. Kl. 8:15 með möguleika á sveigjanleika. Samþykkt samhljóða.
- Kjör formanns og varaformanns
Arnar Ingólfsson var kjörinn formaður fjölskylduráðs og Eyrún Guðbergsdóttir var kosin varaformaður.
- Siðareglur Vopnafjarðarhrepps
Lagt fram til kynningar.
- Ólokin mál fjölskylduráðs frá síðasta kjörtímabili
Farið var yfir ólokin mál sem fjölskylduráð kom að frá síðasta kjörtímabili. Starfsmanni og formanni fjölskylduráðs falið að fara yfir málin, forgangsraða og koma í viðeigandi farveg. Fjölskylduráð mælir með að hjólarampur verði fjarlægður strax og útisvæði við Sundabúð verði lagað sem fyrst.
- Barnvænt sveitarfélag
Starfsmaður fjölskylduráðs og umsjónarmaður um Barnvænt sveitarfélag sagði frá Barnvænu sveitarfélagi.
a) Barnvænt hagsmunamat
Barnvænt hagsmunamat verður haft til hliðsjónar við afgreiðslu mála á hverjum fundi fjölskylduráðs.
b) Aðgerðaráætlun starfsmaður fór stuttlega yfir aðgerðaráætlun
c) Samstarfssamningur lagður fram til kynningar engar athugasemdir komu fram samþykkt samhljóða.
- Farsæld barna kynning
https://www.farsaeldbarna.is/is/farsaeldarlogin
Þórhildur Sigurðardóttir, innleiðingarstjóri farsældar, kynnti verkefnið Farsæld barna og greindi frá innleiðingu farsældarlaganna.
Nánari upplýsingar má finna á vefnum Farsæld barna.
Fleira var ekki tekið fyrir.
Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 10:20.