Fjöl­skylduráð

Fundur nr. 42

Kjörtímabilið 2022—2026

16. apríl 2026

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:15
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 42 í fjölskylduráði kjörtímabilið 2022-2026, haldinn þriðjudaginn 14. apríl 2026 kl. 8:15 í Félagsheimilinu Miklagarði.

1. Erindi#1-erindi

  • Skóla­da­gatal Vopna­fjarð­ar­skóla

    ​Ábending um að merkja 22.-24. mars sem frídaga en þeir voru ekki taldir með sem kennsludagar. Verður breytt. Græn merktir dagar þar sem verður hætt um hádegi, jólaskemmtun og Öskudagur. Hefur verið þannig á jólaskemmtun en nýtt á Öskudegi. Að öðru leyti er dagatalið nokkuð hefðbundið. Skóladagatal samþykkt samhljóða

  • Skóla­da­gatal Leik­skólans Brekku­bæjar með og án skrán­inga­daga um jóla og páska

    ​Skráningardagar hafa gengið ágætlega. Fjögur börn skráð um jól en alla jafna tvö sem mættu. 12 börn voru skráð í dymbilviku en um 8 mættu. Aðrir dagar nýttir meira. Umræða um lokun um jól og páska og ekki mikil ánægja. Skóladagatal með skráningardögum samþykkt með fjórum atkvæðum, einn situr hjá.

  • Lokun íþrótta­húsins í júlí

    ​Ef halda á opnu í júlí þarf að ráða inn sumarafleysingar. Lagt til að loka íþróttahúsinu í júlí. Athugasemd kom um að aðeins voru teknar inn tölur um þá sem mættu í ræktina en ekki salinn. Samþykkt með fjórum atkvæðum, einn situr hjá.

  • Uppsögn skóla­stjóra -Tillögur úr úttekt á rekstri sveit­ar­fé­lagsins: Skipulag skóla- og leik­skóla.

    ​Rætt var um stöðu skóla- og leikskólamála í kjölfar úttektar Björns. Farið var yfir möguleika á breytingum á skipulagi, þar á meðal hvort ástæða sé til að skoða nánar sameiningu skóla og leikskóla, ásamt kostum og áskorunum slíkrar leiðar.

    Einnig var rætt um næstu skref varðandi ráðningu skólastjóra með hliðsjón af tímaramma og þörf á frekari greiningu á framtíðarskipulagi.

    Fjölskylduráð telur mikilvægt að vanda undirbúning og afla frekari upplýsinga áður en ákvörðun er tekin um breytingar á skipulagi. Lagt er til að staða skólastjóra verði auglýst tímabundið til eins árs, samhliða því að unnið verði áfram að greiningu á mögulegum skipulagsbreytingum. Samþykkt með fjórum atkvæðum einn situr hjá. Málinu vísað til sveitarstjórnar


  • Frístunda­akstur - Tillaga úr úttekt á rekstri sveita­fé­lagsins: skipulag frístunda­aksturs

    ​Fjölskylduráð tekur til umfjöllunar niðurstöður úttektar á frístundaakstri þar sem bent er á hátt þjónustustig og mögulegt svigrúm til hagræðingar, meðal annars með fækkun ferða, Um er að ræða mikilvægan málaflokk sem snertir aðgengi barna og ungmenna að frístundastarfi og því nauðsynlegt að skýr stefna og sameiginleg sýn liggi fyrir um framtíðarfyrirkomulag frístundaaksturs.

    Fjölskylduráð leggur til að skólaaksturinn sé kl. 15:30 alla virka daga. Frístundaakstur verður á fyrirfram ákveðnum tíma. Einungis verður í boði ein keyrsla úr frístundastarfi á dag.Félagsmiðstöð verður opin fyrir þá nemendur sem þurfa á að halda. Samþykkt samhljóða, vísað áfram til sveitastjórnar.


Fleira var ekki tekið fyrir og fundi slitið kl. 09:40