Fjöl­skylduráð

Fundur nr. 41

Kjörtímabilið 2022—2026

4. mars 2026

Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:15
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð

Fundur nr. 41 haldinn í fjölskylduráði kjörtímabilið 2022-2026, þriðjudaginn 4. mars 2026 kl. 8:15 í félagsheimilinu Miklagarði.

1. Erindi#1-erindi

  • Mennta­stefna Vopna­fjarðar

    ​Menntastefna Vopnafjarðar lögð fram til kynningar. Starfsmaður kynnir menntastefnu og segir frá vinnunni bakvið hana. Send áfram á sveitarstjórn.


  • Grein­ar­gerð eftir úttekt UNICEF vegna viður­kenn­ingar á Barn­vænu sveit­ar­fé­lagi.

    ​Úttektin kom að mestu leyti vel út. Þær athugasemdir sem komu sneru að tæknilegum atriðum á heimasíðu sem nú er búið að lagfæra. Sent áfram á sveitarstjórn.


  • Fylgiskjöl með leigu­íbúðum í Sundabúð

    ​Fylgiskjöl með leiguíbúðum í Sundabúð lögð fram til kynningar. Starfsmaður kynnir breytingar á þeim og fer yfir stöðuna á biðlistum. Samþykkt samhljóða.


  • Stýri­hópur um leigu­íbúðir

    ​Fundagerð stýrihóps um leiguíbúðir lögð fram til kynningar.

  • Tíma­setning á næsta fundi fjöl­skyldu­ráðs

    ​Næsti fundur fjölskylduráðs verður 14. apríl 2026.

Fundi slitið kl. 09:25.