Fjölskylduráð
Fundur nr. 33
Kjörtímabilið 2022—2026
6. maí 2025
Félagsheimilinu Miklagarði kl. 08:15
Þórhildur Sigurðardóttir ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur nr. 33 í fjölskylduráði kjörtímabilið 2022-2026 var haldinn þriðjudaginn 6. maí kl. 8:15 í Félagsheimilinu Miklagarði.
- Akstursþjónusta
Erindi um akstursþjónustu kom á fund fjölskylduráðs í október 2023 og ekki búið að klára að gera kostnaðaráætlun, samþykkja og undirrita.
Fjölskylduráð brýnir að mikilvægt er að klára vinnuna og birta á síðu hreppsins sent áfram til sveitastjórnar. Samþykkt samhljóða.
- Ferliþjónusta aldraðra og fatlaðra
Minnisblöð lögð fram til ítrekunar.
Fjölskylduráði brýnir að mikilvægt er að koma erindinu í fjárhagsáætlun og er erindinu vísað til vinnslu sveitastjórnar.
Samþykkt samhljóða.
- Heimsendur matur
Ítrekun á erindi frá öldungaráði, minnisblað dagsett 10. september 2024: Sveitastjóra var falið að vinna málið áfram!
Sveitastjóri tekur til máls: Málið er í vinnslu.
- Tillaga um starfshóp
Minnisblað um leiguíbúðir lagt fram til kynningar.
Bjartur segir stuttlega frá tillögunni. Þórhildur tekur til máls þar sem hún hefur haft aðkomu að þessum málum. Fór yfir stöðuna á lausum íbúðum og þeim lagfæringum sem eiga sér stað. Fór yfir lista um umsóknir. Rætt um breytingar á leigusamningum á félagslegum íbúðum sveitarfélagsins þar sem leigusamningar sem ekki eru á félagslegum forsendum niður í 3ja. mánaða uppsagnafrest.
Bjartur leggur fram tillögu um skipan starfshóps varðandi leiguíbúðir sveitarfélagsins.
Hópinn skal skipa: forstöðumaður þjónustumiðstöðvar, fulltrúi skrifstofu/starfsmaður fjölskylduráðs, fulltrúi sveitarstjórnar, formaður fjölskylduráðs og formaður öldungaráðs.
Lagt til að stofnaður verði starfshópur um leiguíbúðir sveitarfélagsins til eins árs.
Samþykkt samhljóða.
Hópinn munu skipa:
• Þórhildur Sigurðardóttir starfsmaður fjölskylduráðs
• Arnar Ingólfsson formaður fjölskylduráðs
• Bjartur Aðalbjörnsson forstöðumaður áhaldahúss
• Svanborg Víglundsdóttir formaður öldungaráðs
• og fulltrúi frá sveitastjórn sem sveitastjórn skipar á næsta sveitastjórnarfundi.
Samþykkt samhljóða.
Fundi slitið kl 9:03