Æsku­lýðs- og íþrótta­nefnd

Fundur nr. 11

Kjörtímabilið 2018—2022

27. apríl 2020

Teams kl. 13:15

1. Almenn mál#1-almenn-mal

  • Vall­arhús rekstur og utan­um­hald

    glundur sendi inn beiðni fyrir hönd Einherja um að sjá um daglegan rekstur og utanumhald og fá þá greitt fyrir það. Tekur nefndin vel í það og telur að best sé að sveitarfélagið og Einherji hittist og ræði nánari útfærslu

    Ef að fólk vill fá húsið leigt þarf að borga fyrir það s.b. Mikligarður.


  • Umhverfi vall­ar­húss

    Nefndin er með tillögu um að helluleggja og smíða pall í kringum húsið og er með grófa kostnaðaráætlun upp á 9,5 milljónir með vinnu. Hægt er að sækja um styrk til mannvirkjasjóðs KSÍ og fá hluta endurgreitt. Telur nefndin að mikið af þessu geti verið unnið í sjálfboðavinnu og er nú þegar búið að leggja til einhvern kostnað í t.d jarðvegsvinnu. Vill nefndin að þetta sé klárað sem fyrst, í síðasta lagi fyrir vígslu hússins.

  • Íþrótta­skóli

    Hugmynd að byrja íþróttaskóla í haust í samstarfi við Einherja fyrir 1. - 4. bekk til að kynna fyrir þeim ýmsar íþróttir. Áætlað að fá fagaðila til að sjá um að kynna fyrir þeim viðkomandi íþrótt sem er á dagskrá í hvert skipti.

  • Víxla/opnun vall­ar­húss

    Hugmynd er að hafa vígsluna 17. Júní en verður það að taka mið af þeim takmörkunnum sem að eru í gildi út af Covid-19.

2. Önnur mál#2-onnur-mal

  • Önnur mál

    Nefndin velti fyrir sér hvenær ærslabelgur verður blásinn upp.  Fengust þau svör að það yrði 4. maí þegar samkomubann breytist.