Æskulýðs- og íþróttanefnd
Fundur nr. 14
Kjörtímabilið 2018—2022
25. nóvember 2021
Teams kl. 11:40
Teitur Helgason ritaði fundargerð
Mætt til fundar
Fundur Æskulýðs- og íþróttanefndar 25 nóvember 2021 kl: 11:40.
- Bréf vegna aldurstakmarks í líkamsrækt
Bréf barst til nefndarinn þar sem að aðilar í 9. bekk fara fram á að fá leyfi til að nota líkamsræktartækin ef foreldrar gefa leyfi og þau hafa fengið kennslu á tækinn.
Nefndin tekur vel í erindið og samþykkir samhljóða.
Þórhildur var búin að kynna sér aðeins málið og ræða við Hrönn í íþróttahúsinu en hún var í sambandi við Langanesbyggð. Hún fékk þau svör að unglingar í 9. bekk mega fara í tækin ef þau eru með uppáskrifað frá foreldrum, leyfið sé metið af foreldrum. Unglingarnir borga fullt gjald eins og aðrir í Langanesbyggð. Þau þurfa sýnikennslu á tækin og ef þau fara ekki eftir fyrirmælum er þeim vísað frá.
Fundi slitið klukkan 11:53.