Vopnafjörður er í umdæmi lögreglustjórans á Austurlandi sem hefur aðsetur á Eskifirði.
Sérstaða embættisins er dreifð byggðin með tólf byggðakjörnum allt frá Djúpavogi í suðri til Vopnafjarðar í norðri. Stærstur þeirra er Egilsstaðir með sína ríflega tvö þúsund og fimm hundruð íbúa, en íbúafjöldi svæðisins er rétt um tíu þúsund.
Sé óskað eftir aðstoð lögreglu hringið þá strax í 112
Á Vopnafirði er lögreglustöð við Lónabraut 2.