Veiðihús við Hofsá í landi Einars­staða breyting á aðal­skipu­lagi og nýtt deili­skipulag

Frestur fyrir athugasemdir

27. nóvember 2025

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps samþykkti á fundi sínum þ. 21. ágúst 2025 að að auglýsa tillögu að breyt­ingu á Aðal­skipu­lagi Vopna­fjarð­ar­hrepps 2006-2026 vegna bygg­ingar á nýju veiði­húsi í landi Einars­staða í samræmi við 31. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 ásamt tillögu að deili­skipu­lagi fyrir svæðið í samræmi við 41. gr. sömu laga.

Breyt­ingin felur í sér að land­notkun á um 10,6 ha. svæði er breytt úr land­bún­að­ar­svæði yfir í versl­unar- og þjón­ustu­svæði VÞ5 þar sem gert verður ráð fyrir nýju veið­húsi við Hofsá. Einnig þarf að byggja nýjan veg og sækja efni í ný efnis­töku­svæði í nágrenninu sem ekki eru tilgreind í aðal­skipu­lagi og er nú bætt við. Nánari skil­málar og hönnun svæð­isins er sett fram í deili­skipu­laginu. Þar er gerð nánari grein fyrir legu vega, lóðar og bygg­inga.

Ofan­greindar skipu­lagstil­lögur eru aðgengi­legar á heima­síðu sveit­ar­fé­lagsins www.vopna­fjar­dar­hreppur.is og í gegnum vef Skipu­lags­stofn­unar www.skipu­lags­gatt.is undir máls­núm­erum 188/2025 og 721/2025.

Hverjum þeim aðila sem telur sig eiga hags­muna að gæta er gefinn kostur á að gera athuga­semdir við skipu­lagstil­lög­urnar til og með 27. nóvember 2025. Tekið er á móti athuga­semdum á rafrænan hátt í gegnum Skipu­lags­gátt. Hægt er að óska eftir nánari leið­bein­ingum gegnum netfangið sigurdur.jonsson@efla.is

Umsagnir um skipu­lagsmál teljast til opin­berra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fund­ar­gerðum sveit­ar­fé­lagsins og eru aðgengileg opin­ber­lega á Skipu­lags­gátt­inni.

Skipu­lags- og bygg­ing­ar­full­trúinn
í Vopna­fjarð­ar­hreppi
Sigurður Jónsson