Athugið að frestur til að skila inn athugasemdum er liðinn

Tillaga að nýju deili­skipu­lagi miðbæjar á Vopna­firði

Frestur fyrir athugasemdir

16. júní 2023

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps auglýsir hér með tillögu að nýju deili­skipu­lagi miðbæjar Vopna­fjarð­ar­kaup­túns, skv. 1.mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Tillagan nær yfir sama svæði og tillaga að vernd­ar­svæði í byggð fyrir elsta hluta byggð­ar­innar og er auglýst samhliða þeirri tillögu. Markmið hennar er að samræma skil­mála um verndun og uppbygg­ingu svæð­isins sem fram koma í vernd­ar­svæð­istil­lög­unni skil­málum skipu­lagáætl­unar fyrir svæðið.

Tillagan verður til sýnis á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps Hamra­hlíð 15 á Vopna­firði frá og með fimmtu­deg­inum 4. maí nk. til föstu­dagsins 16. júní 2023 og á heima­síðu Vopna­fjarð­ar­hrepps á sama tíma..

Þeim sem telja sig eiga hags­muna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athuga­semdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athuga­semdum er til föstu­dagsins 16. júní 2023. Skila skal athuga­semdum til skipu­lags- og bygg­ing­ar­full­trúa Vopna­fjarð­ar­hrepps Kaup­vangi 5, 700 Egils­stöðum eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is  til og með 16. júní 2023.

Hver sá, sem eigi gerir athuga­semdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni.