Athugið að frestur til að skila inn athugasemdum er liðinn

Deili­skipu­lagstil­laga fyrir veiðihús í Ytri Hlíð

Frestur fyrir athugasemdir

2. apríl 2021

Sveit­ar­stjórn Vopna­fjarð­ar­hrepps auglýsir hér með tillögu að deili­skipu­lagi fyrir veiðihús í Ytri – Hlíð, skv. 1.mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010.

Um er að ræða nýtt deili­skipulag fyrir veiðihús í Ytri – Hlíð. Samkvæmt tillög­unni er áformað að byggja veiðihús ásamt tilheyr­andi aðstöðu í hlíð­inni fyrir ofan Ytri – Hlíð ásamt gerð aðkomu­vegar að lóðinni um 1,8 km. að lengd. Vegurinn og mann­virkin verða felld að landi og umhverfi eins og kostur er.

Tillagan ásamt umhverf­is­skýrslu verður til sýnis á skrif­stofu Vopna­fjarð­ar­hrepps Hamra­hlíð 15 á Vopna­firði frá og með fimmtu­deg­inum 18. febrúar nk. til föstu­dagsins 2. apríl 2021.

Þeim sem telja sig eiga hags­muna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athuga­semdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athuga­semdum er til föstu­dagsins 2. apríl 2021. Skila skal athuga­semdum til skipu­lags- og bygg­ing­ar­full­trúa Vopna­fjarð­ar­hrepps, Hafn­ar­götu 4, 710 Seyð­is­firði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is  til og með 2. apríl 2021.

Hver sá, sem eigi gerir athuga­semdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni.