Frestur fyrir athugasemdir
29. desember 2025
29. desember 2025
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti þann 21. ágúst 2025 að auglýsa tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir Skálaneshverfið á Vopnafirði í samræmi við 41. gr. skipulagslaga.
Deiliskipulagið nær til Skálaneshverfis, íbúðabyggðarinnar syðst í kauptúninu. Ekkert deiliskipulag nær til þessa svæðis í dag. Markmiðið er að ná fram heilstæðu skipulagi og yfirbragði fyrir hverfið. Þá er stefnt að nýtingu auðra svæða undir nýjar íbúðahúsalóðir og að nýta betur land og innviði í þéttbýlinu, ásamt því að styrkja hverfið.
Tillagan er aðgengileg á vef sveitarfélagsins og í gegnum Skipulagsgáttina, vef Skipulagsstofnunar, mál nr. 189/2025.
Hverjum þeim sem telur sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við skipulagstillöguna frá 14. nóvember til og með 29. desember 2025. Tekið er á móti athugasemdum á rafrænan hátt í gegnum Skipulagsgátt. Hægt er að óska eftir nánari leiðbeiningum gegnum netfangið sigurdur.jonsson@efla.is.
Umsagnir um skipulagsmál teljast til opinberra gagna. Vakin er athygli á því að nöfn og umsagnir koma fram í fundargerðum sveitarfélagsins og eru aðgengileg opinberlega á Skipulagsgáttinni.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn
í Vopnafjarðarhreppi
Sigurður Jónsson