Frestur fyrir athugasemdir
12. nóvember 2021
12. nóvember 2021
Brim hf., eigandi fiskvinnslunnar á Vopnafirði, áformar að reisa nýja uppsjávarvinnslu á hafnarbakka Vopnafjarðarhafnar. Ekki er gert ráð fyrir þeirri uppbyggingu í núgildandi deiliskipulagi hafnarsvæðisins. Stækkunin er háð lengingu á löndunarbryggjunni og landfyllingu en gert er ráð fyrir þeirri stækkun í deiliskipulaginu.
Tillagan verður til sýnis á skrifstofu Vopnafjarðarhrepps Hamrahlíð 15 á Vopnafirði frá og með fimmtudeginum 30. september nk. til föstudagsins 12. nóvember 2021 og á heimasíðu Vopnafjarðarhrepps á sama tíma.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna. Frestur til að skila inn athugasemdum er til föstudagsins 12. nóvember 2021. Skila skal athugasemdum til skipulags- og byggingarfulltrúa Vopnafjarðarhrepps Hafnargötu 4, 710 Seyðisfirði eða á netfangið sigurdur.jonsson@efla.is til og með 12. nóvember 2021.
Hver sá, sem eigi gerir athugasemdir við tillöguna fyrir tilskilinn frest, telst samþykkur henni.