Frestur fyrir athugasemdir
19. nóvember 2026
19. nóvember 2026
Sveitarstjórn Vopnafjarðarhrepps samþykkti á fundi sínum þann 19. mars 2026 að auglýsa heildarendurskoðun á Aðalskipulagi Vopnafjarðarhrepps til 2040 með tilheyrandi fylgigögnum.
Markmið endurskoðunar aðalskipulags Vopnafjarðarhrepps er að tryggja sem besta samfellu í þróun svæða innan bæjarmarka, svo að nýting og uppbygging innviða geti átt sér stað í takt við fjölgun íbúa. Jafnframt að skapa umgjörð um þróun samfélagsins og uppbyggingu í sátt við umhverfi með sjálfbærni og vernd vistkerfa að leiðarljósi.
Aðalskipulagsbreytingin er unnin í samræmi við skipulagslög nr. 123/2010 og lög um umhverfismat framkvæmda og áætlana nr. 111/2021.
Aðalskipulagið tekur mið af annarri stefnumótun bæjarins sem og Landsskipulagsstefnu, Svæðisskipulagi Austurlands og Heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.
Tillagan er aðgengileg á vef sveitarfélagsins og í gegnum Skipulagsgáttina, mál nr. 196/2024.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera skriflega athugasemd á Skipulagsgátt, skipulagsgatt.is, málsnúmer 196/2024, í síðasta lagi þann 19. nóvember 2026.
Skipulags- og byggingarfulltrúinn
í Vopnafjarðarhreppi
Sigurður Jónsson
| V291N Skýringaruppdr. F 260929 | pdf / 5 mb |
| V291N Skýringaruppdr. D 260929 | pdf / 7 mb |
| V291N Skýringaruppdr. E 260929 | pdf / 4 mb |
| V291N Skýringaruppdr. C 260929 | pdf / 8 mb |
| V291N Skýringaruppdr. B 260929 | pdf / 5 mb |
| V291N Skýringaruppdr. A 260929 | pdf / 21 mb |
| V291N Aðalskipulag Vopnafjarðarhrepps 2040 260929 | pdf / 6 mb |
| V291N Aðalskipulag Vopnafj 2040 UMHVERFISSKÝRSLA 260929 | pdf / 5 mb |