Gjöfular, eftirsóttar og fallegar stangveiðiár renna í Vopnafjörð; Hofsá, Selá, Vesturdalsá og Sunnudalsá.
Laxveiðiárnar eru leigðar Veiðiklúbbnum Streng sem sér um rekstur ánna og veiðihúsa þeim tengdum.
Almenningur getur keypt sér veiðileyfi á silungasvæði Hofsár hjá Veiðiklúbbnum Streng og í Nykurvatn á Bustarfelli.
Að dorga á bryggjunni í Vopnafjarðarhöfn heillar marga og er bryggjuveiði öllum frjáls að því gefnu að dorgveiði trufli ekki aðra starfsemi á bryggjunni og fyllsta öryggis sé gætt.