Myndagrúsk er samstarfsverkefni Félags eldri borgara á Vopnafirði og Austurbrúar.
Starf þess má rekja allt aftur til ársins 2010 en þá byrjuðu eldri borgarar að hittast einu sinni í viku, skoða saman gamlar myndir og skrá heimildir þeirra. Myndirnar eru skannaðar á tölvutækt form auk þess sem heimildaskráning fylgir hverri og einni mynd.
Starfið í kringum Myndagrúsk hefur með árunum markað sér sess í vopnfirsku samfélagi og hefur bæði menningartengt og félagslegt gildi.
Næstu dagsetningar#naestu_dagsetningar
Miðvikudaga | 14:00 — 16:00 |