Lista­smiðjur Menn­ing­ar­stofu fyrir börn

16—11. júlí 2025

Menn­ing­ar­stofa Fjarða­byggðar mun, líkt og síðustu ár, halda úti lista­smiðjum sumarið 2025 en þar eru í boði skap­andi námskeið fyrir börn sem lokið hafa 3.—7. bekk grunn­skóla (fædd 2012-2016). 

Boðið verður upp á fjöl­breytt námskeið víðs­vegar um Fjarða­byggð. Athugið að takmark­aður fjöldi barna kemst í hverja smiðju og fyrstur kemur fyrstur fær. Reiknað er með 12-15 börnum í allar smiðjur.

 

 

Í boði verða 4 listasmiðjur:#i-bodi-verda-4-listasmidjur

  • MYND­LIST­ARSMIÐJA — LEIÐ TIL TJÁN­INGAR
  • VÆTTA­SMIÐJA — FJÖLL­ISTA­SMIÐJA UM NÁTT­ÚRU­VÆTTI
  • TÓNLIST­ARSMIÐJA —TAKTUR OG TÓNEYRA
  • KRAKKA­VELDI – GJÖRN­INGAR OG VALD­EFLING BARNA

Til athugunar fyrir foreldra:#til-athugunar-fyrir-foreldra

  1. Smiðj­urnar eru starf­ræktar fimm daga vikunnar með einni undan­tekn­ingu en það verður ekki smiðja á 17. júní. Smiðj­urnar eru eftir hádegi, og haldin verður kynning eða sýning á vinn­unni í lok námskeiðs. Nánari upplýs­ingar um námskeiðin eru í lýsingu og verða sendar í tölvu­pósti til skráðs forráða­manns viku áður en námskeið hefst.
  2. Við hvetjum fólk til að sækja námskeið milli staða. Athugið að ekki eru skipu­lagðar samgöngur milli byggð­ar­kjarna fyrir þessi námskeið en við hvetjum foreldra til að skiptast á að keyra á milli og nota almenn­ings­sam­göngur eins og hægt er.
  3. Við biðjum foreldra um að vera tíman­lega í að skrá börnin þar sem það er takmarkað pláss í boði. Lágmarks­fjöldi á námskeið eru fimm þátt­tak­endur.
  4. Aðeins þeir sem eru skráðir mega vera á námskeið­unum, ef vinir vilja bætast í hópinn skulu foreldrar hafa samband við leið­bein­anda um mögu­leika á skrán­ingu.
  5. Verð fyrir hvert námskeið er 15.000 kr.
  6. Veittur er systkina­afsláttur (verð: 10.000 kr. fyrir hvert barn)
  7. Ef barn tekur þátt í fleiri en einu námskeiði er einnig veittur afsláttur. Verð: 10.000 kr. fyrir hvert námskeið ef barn er skráð í 2 námskeið. Verð: 5.000 kr. fyrir hvert námskeið ef barn er skráð í 3 eða fleiri námskeið.
  8. Börnin skulu mæta með létt nesti og í þægi­legum fötum sem mega verða fyrir hnjaski. Við erum oft bæði úti og inni sama daginn og því er gott að vera klæddur eftir veðri.

Nánari upplýs­ingar um námskeiðin veitir starfs­fólk Menn­ing­ar­stofu í síma 470-9061 og á netfanginu menn­ing­ar­stofa@fjar­da­byggd.is // Fylgist með tilkynn­ingum á face­book síðu Menn­ing­ar­stofu.

UMSÓKNIR

Sótt er um í gegnum íbúagátt Fjarða­byggðar með því að smella hér

LÝSING Á LISTA­SMIÐJUM MENN­ING­AR­STOFU 2025:

MYNDLISTARSMIÐJA#myndlistarsmidja

16. júní til 20. júní kl. 12:30-16:00. Stað­setning: Þórs­mörk, Neskaup­stað.

Ath. vegna 17. júní sem er á þriðju­degi fellur smiðjan niður þann daginn en bætt er við hálf­tíma hina fjóra dagana.

Leið­bein­andi: Ra Tack

Ra Tack er mynd­list­arkvár og mynd­mennta­kennari í Grunn­skól­anum á Seyð­is­firði. Hán hefur sýnt um allan heim og hefur búið og starfað á Seyð­is­firði síðustu ár. Ra hefur lagt sitt mark á lista­senuna hér á landi með tján­ing­ar­fullum og litaglöðum abstrakt verkum sem hafa vakið mikla athygli.

Bella Podpadec er mynd­list­arkvár, bassa­leikari, líkams­með­ferð­ar­aðili og leið­bein­andi sem býr og starfar á Seyð­is­firði. Verk Bellu eru fjöl­breytt, leikræn og byggja á innsæi.

Ra og Bella munu leiða mynd­list­ar­nám­skeið þar sem börn nota leik til að ferðast í gegnum tímann, læra hluti um sig sjálf og heiminn í kringum þau. Námskeiðið verður skemmti­legt og gagn­virkt, þar sem börnin finna sínar uppá­halds tján­ing­ar­leiðir í gegnum málverk, skúlp­túra og önnur mynd­listar­form!

VÆTTASMIÐJA#vaettasmidja

23. júní til 27. júní kl. 13:00-16:00. Stað­setning: Braginn við Stríðs­ára­safnið á Reyð­ar­firði

Leið­bein­endur: Regn Sólmundur og Alda Villi­ljós

Í þessari fjöll­ista­smiðju taka lista­kvárin Alda Villi­ljós og Regn Sólmundur á móti ykkur í heill­andi ferðalag um heim nátt­úru­vætta. Við skoðum hvaða vættir birtast í þjóð­sögum okkar og leggjum leið út í nátt­úruna til að finna nýja – eða jafnvel endurf­inna þá sem hafa gleymst.

Þátt­tak­endur mynda vættina sem við rekumst á og skapa stutta texta, sögur eða ljóð til að kynna nýja vætti til sögunnar. Nátt­úran er full af furðu­verum, og með smá æfingu má sjá þær alls staðar!

TÓNLISTARSMIÐJA#tonlistarsmidja

30. júní til 4. júlí kl. 13:00-16:00. Stað­setning: Skrúður, Fáskrúðs­fjörður.

Leið­bein­endur: Elísabet Mörk og Jónatan

Tónlist­arsmiðja þar sem þátt­tak­endur fá að kynnast grunn­atriðum tónlistar. Nemendur fá að spila á alls kyns hljóð­færi, kynnast þeim og notkun þeirra, og taka þátt í hópverk­efnum sem leggja áherslu á tengslamyndun, samhæf­ingu, og þjálfun takts og tóneyra. Nemendur læra að tjá sig í orðum, hreyf­ingum og hljóði og mikil­vægi þessara þriggja þátta í tónlist og sköpun. Smiðjan nýtist þeim börnum sem eru að stíga sín fyrstu skref í tónlist­ar­heim­inum en einnig fyrir lengra komna.

Elísabet Mörk og Jónatan Emil eru meðlimir hljóm­sveit­ar­innar CHÖGMA en þar er Elísabet texta­smiður og söngvari og Jónatan trommari. Jónatan hefur starfað sem tónlist­ar­kennari í Fjarða­byggð í tvö ár og árið 2024 gaf Elísabet út ljóða­bókina Nokkur Ljóð og Smásögur. Bæði hafa þau verið virk í menn­ingar- og tónlist­ar­lífi Fjarða­byggðar síðustu ár.

KRAKKAVELDI#krakkaveldi

7. júlí – 11. júlí  kl. 13:00-16:00. Stað­setning: Sköp­un­ar­mið­stöð, Stöðv­ar­firði.

Leið­bein­endur: Salka Gullbrá, Guðný Hrund og Hrefna frá Krakka­veldi

Krakka­veldi er gjörn­inga fyrir­bæri sem börn skapa fyrir full­orðna. Krakka­veldi telur að full­orðnir gætu haft gagn af því að hlusta meira á börn. Börn eru þriðj­ungur af mann­kyninu öllu, en hafa þó minnsta lýðræð­is­lega vald í samfé­laginu okkar. Við erum hér til að breyta því! Við erum börn sem viljum hafa áhrif á heiminn. Við viljum að full­orðnir treysti okkur!

Krakka­veldi hefur verið haldið í Norræna húsinu og fyrir vestan á Hrafns­eyri en einnig farið fyrir utan land­stein­anna til dæmis síðasta sumar með Barna­barinn á lista­hátíð í Noregi. Salka, Hrefna & Guðný eru allar með menntun í sviðslistum og hafa breiða reynslu að baki sér í þeim geira og hafa unnið mikið með börnum.

Salka Gullbrá, Guðný Hrund og Hrefna munu leiða smiðju Krakka­veldis sem hluti að sumar­nám­skeiðum Fjarða­byggðar. Sem snýst um að vald­efla börn og láta rödd þeirra heyrast á þeirra eigin forsendum um það sem þau vilja tjá sig um!